eyjan.is

Fimmtudagur 09.02.2012 - 09:56 - Ummæli ()

En að leigja bíl í snattið? Nýtt samgöngukerfi gæti sparað fólki mikla fjármuni

Margir hafa gagnrýnt takmarkaðar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu en brátt gæti verið kostur að leigja bíl í snattið

Ef allt gengur eftir verður innan tíðar hægt að leigja bifreiðar til lengri eða skemmri tíma á ákveðnum stöðum og greiða fyrir notkunina gegnum net eða síma. Slíkt kerfi hefur gefist ágætlega erlendis og gæti sparað heimilum kostnað við að halda úti fleiri bílum en einum.

Meðal fyrirtækja sem skoða slíkan möguleika eru Landsbanki Íslands, Landsvirkjun, Alcoa og Reykjavíkurborg að því er fram kemur í Fréttablaðinu en hugmyndin er bæði að spara heimilum landsins fjármuni og jafnframt að auka valmöguleika í almenningssamgöngum.

Finnur Sveinsson, hjá Landsbanka Íslands, er einn þeirra sem kynnt hefur verkefnið sem er við lýði í nokkrum borgum Evrópu. Segir hann að með því að nýta slíkt kerfi geti heimilin mögulega sparað sér kaup og rekstur á fleiri en einum bíl en rekstur eins smábíls er talinn kosta rúma milljón króna árlega.

Kerfið virkar þannig að áhugasamir kaupa sér aðgang og panta svo bíl gegnum vefinn. Þar er hægt að tiltaka leigutíma og mögulega akstursvegalengd. Í kjölfarið sækja notendur bifreiðina á sérstöku geymslustæði, opna bílinn með lykilkorti eða símaskilaboðum, og geta ekið af stað. Bílnum er svo skilað á sama stað að ökuferð lokinni og aðeins greitt fyrir ekna kílómetra.

Sænskur sérfræðingur er Íslendingunum innan handar með verkefnið en í Svíþjóð er slíkt kerfi víða að finna í stærri borgum og hefur árangurinn þótt góður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is