Starfsmenn ÁTVR fóru 37 ferðir til útlanda en flytur ekkert inn: Sjö ferðir vegna samfélagslegrar ábyrgðar
Starfsmenn ÁTVR fóru alls 37 ferðir til útlanda, þótt fyrirtækið flytji ekki inn eina einustu áfengisflösku til landsins. Sjö ferðir voru farnar til að kynna sér samfélagslega ábyrgð.
Heildarkostnaður við ferðirnar var 8,1 milljón króna, að því er segir í Viðskiptablaðinu í dag.
Af þessum 37 ferðum var tilgangur sjö ferða vegna funda um samfélagslega ábyrgð. Samfélagsleg ábyrgð ÁTVR kemur meðal annars fram í auglýsingum ríkisfyrirtækisins þar sem hvatt er til hóflegrar drykkju, en jafnframt í stefnu fyrirtækisins um hvaða áfengi má og má ekki selja.
Þannig hefur ÁTVR bannað sölu á Motörhead rauðvíni þar sem nafn samnefndrar hljómsveitar er „vísun í notendur hins ólöglega fíkniefnis amfetamíns ásamt því að textar við lög hljómsveitarinnar fjalli iðulega um stríð, misnotkun valds, óábyrgt kynlíf og misnotkun vímuefna.“
Flestar ferðirnar voru farnar til Norðurlanda, en meðal annars fóru starfsmenn til Helsinki að heimsækja vínbúðir Alko, sóttur var fundur til Kaupmannahafnar um áfengismál og samfélagslega ábyrgð, í Stokkhólmi var sóttur fundur með tóbaksframleiðandanum Philip Morris og einnig var farið á ráðstefnu í Orlando um tölvumál.
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins er enn fremur tekið fram að ÁTVR flytur ekki inn eina einustu flösku af áfengi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
