eyjan.is

Föstudagur 10.02.2012 - 16:43 - Ummæli ()

Dómari ekki vanhæfur þótt hann fari í bíó með verjanda: Spila golf, vinna og borða saman

Frá aðalmeðferð í máli Baldurs Guðlaugssonar í Hæstarétti.

Það leiðir ekki til vanhæfis þótt verjandi og dómari í tilteknu máli fari saman út í bíó, að mati Brynjars Níelssonar, hæstaréttarlögmanns og formanns Lögmannafélagsins. Allt annað gildir ef aðili máls á í viðlíka samskiptum við dómara.

DV greindi frá því fyrr í vikunni að sést hafi til hæstaréttardómarans Benedikts Bogasonar og lögmannsins Karls Axelssonar saman í bíó við þriðja mann. Benedikt dæmir í máli Baldurs Guðlaugssonar, en Karl er verjandi Baldurs. Bíóferðin mun hafa verið á svipuðum tíma og aðalmeðferðin fór fram í Hæstarétti.

Brynjar bendir á að margir lögmenn séu tengdir með einum eða öðrum hætti, enda bakgrunnur þeirra oft á tíðum keimlíkur.

Sumir, eins og ég, eru kvæntir dómurum, aðrir eru kunningjar og gamlir skólafélagar. Tengslin eru því með ýmsum hætti. Ekki er óalgengt að einstakir dómarar og lögmenn spili golf saman, borði á veitingastað þegar svo ber undir og vinni saman að einhverjum verkefnum. Ég vinn til að mynda með hæstaréttardómara í dómnefnd og svona mætti lengi telja. þessir dómarar dæma í málum hjá þessum lögmönnum þrátt fyrir það, nema makar gera það ekki. Það hefur hingað til ekki þótt leiða til vænhæfis,

segir Brynjar við Eyjuna. Hann segir málið horfa öðruvísi við ef aðili málsins hafi farið í bíó með dómaranum, en lögmaður sem slíkur telst ekki aðili máls. Þetta sé hins vegar umdeilanlegt og erfitt er að setja mörk í þessu sambandi, ekki síst í jafn fámennu samfélagi og Íslandi.

Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af þessu fyrirkomulagi enda metnaður hvers dómara að komast að réttri niðurstöðu,

segir Brynjar sem hefur ekki orðið var við að tengsl dómara og lögmanna hafi leitt til sérkennilegrar eða óeðlilegrar niðurstöðu.

Ég hef grun um það að verjandinn og dómarinn í þessu tiltekna máli hafi áður farið saman í bíó. Ég sé ekki að það skipti máli hvenær bíóferðin er farin við mat á vanhæfi dómara almennt. Þá á heldur ekki að skipta máli hvort dómsmálið er stórt eða lítið, eða hvað mönnum finnst það mikilvægt. Ég þekki dómarann og verjandann mjög vel persónulega. Þetta eru fagmenn fram í fingurgóma og prinsippmenn miklir. Benedikt Bogason lætur bíóferðir með skólafélögum sínum ekki rugla sig í störfum sínum,

segir Brynjar. Mál af þessu tagi hafa ekki verið rædd á vettvangi lögmannafélagsins.

En ég get samt alveg skilið að þetta trufli marga. Það þarf bara að taka þá umræðu án alls ofstækis. Þetta er mín persónulega skoðun á þessum málum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is