Framboðsæði: Með sömu glýju í augum og hommar sem koma ferskir upp úr skúffunni
„Allt er þetta ekkert mál, eintómur barnaleikur. Komi fram sem flestir framboðslistar. Komi fram sem flestir frambjóðendur. Setjið sem flest réttlætismál á oddinn. Hafið hátt kynjahlutfall. Látið vera sem mest gagnsæi og opin tjöld.“
Þetta segir Guðbergur Bergsson, rithöfundur, í hárbeittum pistli á Eyjunni, þar sem hann talar um „framboðsæði“.
Þetta æði er sprottið upp hjá miðaldra kynslóð, segir Guðbergur sem telur að þótt þessi kynslóð sé ekki beint gamaldags, þá séu kjörorð hennar „dálítið súrsuð og venjulegt gaspur úr gömlu körlunum“.
Gagnsæi, heiðarleiki, jafnrétti kynjanna, skattalækkanir og afnám ruslatunnugjaldsins. Maður gæti því haldið, eftir loforðunum að dæma, að kynslóðin sé haldin vissum loforðaglöpum. Allt slíkt bendir til þess að frambjóðendurnir sigli allt of hratt inn í fyrirtíðarelli.
Engu að síður telur þetta fólk sig vera ómissandi í „framtíðarsamfélagi hreinleikans“. Það telur að kjósendur hljóti að taka því opnum örmum á jafn auðveldan hátt og þegar smellt er á „líkar þetta“ á Facebók frægðarinnar.
Einhvern veginn minnir það á lúða poppara sem koma loksins út úr bílskúrnum með græjurnar og finnst sjálfsagt að Harpa bjóði þeim að spila í salnum þar sem glæsisöngvarar áttu aðeins að flytja óperur,
segir Guðbergur og bætir við:
Í augum nýju framboðskynslóðarinnar er sama glýja og hjá hommum sem eru rétt í þessu að koma ferskir upp úr skúffunni eða skápnum í þeirri trú að skilningurinn muni mæta þeim og ríkja eins og heiðríkjan yfir jöklinum í meistaraverki skáldsins.
Guðbergur segir það verða gaman að lifa í þjóðfélagi sem nýgræðingar á Alþingi hafa gert mannvænt.
Ekkert mál! Sagði ekki Lénín að sérhver fjósakona ætti að geta stjórnað ríki framtíðarinnar. Orð hans sönnuðust í Sovétríkjunum. Þau urðu í lokin að algeru fjósi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

