eyjan.is

Föstudagur 10.02.2012 - 15:45 - Ummæli ()

Lilja fær sama forskot og Jóhanna fékk árið 1995: Átökin eru öll á vinstri vængnum

Flokkur Lilju Mósesdóttur næði fjórtán þingmönnum á þing ef kosið yrði í dag samkvæmt nýrri könnun

Það er ekkert einsdæmi að ný framboð mælist með mikið fylgi í fyrstu könnunum, líkt og framboð Samstöðu og Lilju Mósesdóttur gerði í könnun Fréttablaðsins. Þannig mældist Þjóðvaki Jóhönnu Sigurðardóttur með rúmlega 17 prósenta fylgi í ársbyrjun 1995.

Samkvæmt könnun Fréttablaðsins fengi samstaða 21 prósent atkvæða og 14 þingmenn, ef gengið yrði til kosninga í dag. Þessi niðurstaða kemur mörgum á óvart, ekki síst í ljósi þess að framboðið var kynnt til sögunnar á þriðjudag.

Þetta kemur þó ekki á óvart í ljósi sögunnar. Þannig mældist Þjóðvaki með 17,5 prósenta fylgi í könnun sem gerð var í janúar 1995, sama mánuð og það framboð var stofnað. Mánuði síðar var fylgið komið niður í 10,5 prósent. Þegar talið var upp úr kjörkössunum í apríl var niðurstaðan hins vegar 7,2 prósent og fjórir þingmenn.

Önnur tíðindi eru þau að Björt framtíð, sem Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn fara fyrir, fékk einungis 6,1 prósent atkvæða. Á það má þó benda að Besti flokkurinn fékk 3 prósenta fylgi í fyrstu könnun, en endaði með 34,7 prósent atkvæða í kosningunum sjálfum.

Nýju framboðin virðast hins vegar ekkert taka af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Samanlagt fengju þessir tveir flokkar 47,5 prósent atkvæða sem hugsanlega dygði þeim til að mynda meirihluta.

„Það er greinilegt að átökin eru á vinstri vængnum. Við erum ánægð með að bæta við okkur fylgi, enda koma úrslitin til með að ráðast á málefnum og stefnu. Þar stöndum við sterk, enda hefur vinstri stjórnin ekki staðið við eitt eða neitt,“

segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins við Eyjuna.

Um helgina verður nýtt framboð formlega kynnt til sögunnar. Er það sameiginlegt framboð Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar, Frjálslynda flokksins og nokkurra fulltrúa stjórnlagaráðs.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is