eyjan.is

Föstudagur 10.02.2012 - 07:38 - Ummæli ()

Lilja inn með látum. Samstaða með 14 þingmenn ef gengið yrði til kosninga nú

Flokkur Lilju Mósesdóttur næði fjórtán þingmönnum á þing ef kosið yrði í dag samkvæmt nýrri könnun

Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur og félaga, Samstaða, fengi rúmlega 21 prósent atkvæða og næði fjórtán mönnum inn á þing ef gengið yrði til kosninga í dag samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Nýtur Samstaða langmests fylgis þeirra nýju flokka sem hyggjast bjóða fram í næstu Alþingiskosningum.

Stöð 2 og Fréttablaðið gerðu könnun á fylgi stjórnmálaflokkanna í vikunni og var þar spurt út í stuðnings við ný framboð sem fram hafa komið að undanförnu. Taka þarf niðurstöðunum með fyrirvara þar sem svarhlutfall var aðeins um 53 prósent og mörg nýju framboðanna ekki kynnt sig eða stefnumál sín í þaula.

Nýju framboðin fá þó samtals 30 prósenta fylgi þeirra sem afstöðu taka og þar af fær Samstaða 21,3 prósent. Nýr flokkur Besta og Guðmundar Steingrímssonar, Björt framtíð, nýtur stuðnings 6,1 prósenta svarenda en hvorki Hægri grænir né Lýðfrelsisflokkurinn næðu manni inn á þing. Báðir mælast með kringum eitt prósenta fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mesta stuðnings þeirra sem svara og segjast 35 prósent kjósa þann flokk sem gæfu honum 24 þingsæti. Samstaða yrði annar stærsti stjórnmálaflokkur landsins með 21,3 prósent, Framsóknarflokkurinn er þriðji stærstur með 12,5 prósenta stuðning og Samfylking með 12,3 prósent fylgi. VG kysu átta prósent og Hreyfingin fengi 1,7 prósent sem dugar ekki til að koma manni inn á þing.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is