Aþena logar: Kveikt í byggingum á meðan þingmenn ræða örlög grísku þjóðarinnar
Kveikt hefur verið í sögulegum kvikmyndahúsum, kaffihúsum, verslunum og bönkum í miðborg Aþenu þar sem tugir þúsunda hafa safnast saman. Á sama tíma ráða grískir stjórnmálamenn ráðum sínum og ákvarða örlög þjóðarinnar.
Til stendur að greiða atkvæði um 130 milljarða björgunarpakka á gríska þinginu. Það eru ESB, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópski seðlabankinn sem reiða fram risalánið gegn loforðum grískra stjórnvalda um harkalegan niðurskurð.
Mikill fjöldi hefur safnast saman í miðborg Aþenu og hafa margir gripið til ofbeldis og spellvirkja. Kveikt er í byggingum og gripdeildir eiga sér stað. Einnig hafa borist fréttir af óeirðum á eyjunum Korfú og Krít, Þessalóníku og í minni bæjum og borgum.
Lögreglan hefur beitt táragasi gegn mótmælendum og hefur fjöldi Grikkja sem og erlendra ferðamanna leitað skjóls á hótelum.
Leiðtogar grísku ríkisstjórnarinnar hafa varað við því að ástandið verði enn verra verði björgunarpakkinn ekki samþykktur. Ef það verður ekki gert, er fátt sem kemur í veg fyrir að landið verði gjaldþrota.
Fimm ráðherrar sögðu af sér fyrir helgi vegna óánægju með björgunarpakkann. Sama hvað verður, þá er ljóst að Grikkir eru í afar slæmri stöðu hvernig sem atkvæðagreiðslan fer.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

