eyjan.is

Sunnudagur 12.02.2012 - 01:26 - Ummæli ()

Goðsögn fellur frá: Söngkonan Whitney Houston látin, 48 ára að aldri

Ein þekktasta tónlistarkona síðari ára, Whitney Houston er látin. Hún varð aðeins 48 ára.

Talsmaður Houston staðfesti lát hennar seint í gærkvöldi, en dánarorsök hefur ekki verið gefin upp.

Houston var um árabil ein vinsælasta söngkona veraldar, en hefur einnig leikið í kvikmyndum. Alls hafa plötur hennar selst í um 170 milljónum eintaka.

Meðal þekktustu laga Houston má nefna topplögin Saving All My Love for You, Greatest Love of All og Where Do Broken Hearts Go, sem öll komust í efsta sæti vinsældarlistans vestanhafs. Plata hennar úr kvikmyndinni Bodyguard, þar sem hún lék einnig á móti Kevin Costner, er ein af tíu söluhæstu hljómplötum allra tíma.

Whitney var dóttir söngkonunnar Cissy Houston, fædd 9. ágúst 1963, í Newark, New Jersey í Bandaríkjunum. Hún var uppgötvuð um tveimur áratugum síðar á næturklúbbi í New York, þar sem hún vann fyrir sér sem söngkona.

Whiney Houston glímdi við áfengis- og vímuefnafíkn. Hjónaband hennar og Bobby Brown var vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla, þar sem eiturlyf og ofbeldi komu oft við sögu. Þau skildu fyrir nokkrum árum og í fyrra var greint frá því í fréttum að Whitney Houston hefði farið í meðferð til að vinna bug á fíkn sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is