eyjan.is

Viðskipti Sunnudagur 12.02.2012 - 18:37 - Ummæli ()

Hagfræðingur: Kreppa í 15 ár verði ekkert að gert – Ísland þarfnast sárlega skuldauppgjafar

Steve Keen, hagfræðingur.

Alþjóðahagkerfið er svo þjakað af skuldum að það mun taka allt að 15 ár að vinda ofan af þeim. Hætta er á að fasísk öfl taki völdin verði ekkert að gert, að mati ástralsks hagfræðings. Hann segir „nútíma skuldafrí“ lausnina og segir Ísland sárlega þurfa á því að halda.

Steve Keen var gestur í Silfri Egils á RÚV  í dag. Keen er umdeildur innan hagfræðinnar, enda hefur hann verið afar gagnrýninn á hefðbunda nútímahagfræði og sagt hana eiga sök á þeirri kollsteypu sem fjármálakerfið varð fyrir. Varaði hann til að mynda ítrekað við hruninu löngu áður en það varð.

Í viðtalinu segir Keen að það sé innbyggt inn í fjármálakerfið að skuldir vaxi þar sem allar nýjar fjárfestingar séu fjármagnaðar með skuldsetningu.

„Það hættulega er þegar fjármálakerfið fjármagnar ekki raunverulegar fjárfestingar heldur spilar með verðmæti eigna. Þá tekur fólk fé að láni til að spila á verðmætið en það leiðir til verðhækkunar eigna sem leiðir til jákvæðrar afturvirkni milli skuldasöfnunar og verðmæti eigna. Og skuldasöfnunin vex miðað við tekjur án þess að þær aukist til að borga skuldir og að því kemur að bólan springur. Eins og þið fenguð að finna svo sárlega á Íslandi og við erum að fara að sjá hér í Ástralíu líka.“

Keen segir nýklassísku hagfræðingana hvorki skilja peninga né skuldir. Útskýrði hann að uppspretta hagnaðar bankanna væri fengin með því að skapa skuldir. Þessar skuldir leiði til eigna bólu sem á endanum leiði til hruns. Verðmæti eignanna hrynur í verði, en skuldin stendur eftir.

„Ég býst við að framundan séu tíu til fimmtán kreppuár þar til skuldir á heimsvísu hafa lækkað niður í að vera viðráðanlegar og geta stutt við framgang kapítalismans…“

segir Keen og óttast að ástandið verði svipað og á fjórða áratug 20. aldar.

„Eina leiðin því til að ná til eyrna stjórnmálastéttarinnar er að segja: Nema þið snúið af leið og dragið úr skuldunum, fjarlægið skuldabyrðina núna…Ef þið farið hægu leiðina að draga úr skuldabyrðinni á tíu til fimmtán árum, verður alemnnt niðurbrot; fasísk öfl ryðja ykkur burt, kannski lendið í fangelsi ef þið verðið heppin m.t.t. hvað kom fyrir pólitíska andstæðinga fasismans á fjórða og fimmta tug síðustu aldar. Látið slíkt ekki henda aftur.“

Lausn Keens er það sem hann kallar „nútíma skuldafrí“. Hann lýsir því á eftirfarandi hátt:

„Það sem við þurfum…er tilfærsla fjármuna til almennings þar sem við búum til peningana og fáum þá í hendur fólki í staðinn fyrir eigur þess. En ef maður lætur féð renna til fjölskyldu eða atvinnufyrirtækis sem eru í skuldum og…Peningarnir yrðu lagðir inn á reikning þeirra og fólkinu sagt að ef skuldir þess væru hærri en fjárhæðin yrði öll fjárhæðin að fara í lækkun skuldarinnar; að ekki mætti eyða peningunum. En ef aftur á móti er um fyrirtæki að ræða sem skuldar ekkert þá fær það innspýtingu lausafjár.“

Keen segir þessa lausn ætlaða til að bjarga fólkinu en ekki bönkunum. Fyrir bankana yrði staðan svona:

„Segjum sem svo að það lækkaði húsnæðisskuldir um helming. Það þýddi að eigur bankanna í formi lána lækkuðu svo mikið en þeir fengu reiðufé inn þar sem fólk greiddi til baka lánin sín. Eigur bankanna væru því óbreyttar að magni til en tekjur myndu lækka umtalsvert. Svo þeir væru í lausafjárkröggum en ekki gjaldþrota. Sömuleiðis myndi hver og einn eigandi verðbréfa sem treysti á tekjur af þeim glata helmingi verðmætis þeirra og tekna. Sá myndi því tapa. En hinsvegar hefði hann meira lausafé milli handa.“

Þessi lausn, segir Keen, verður til þess að draga stórlega úr áhrifum bankanna í samfélaginu. Þeir yrðu vissulega minni og sköpuðu færra fólki vinnu, en þeir yrðu líka lausir við stjórnendur sem greiða sér fáránlega há laun. Þetta sé hins vegar nauðsynlegt því kenna þurfi bönkunum ráðningu.

„Bankakerfið á að finna fyrir því sem nú er um að vera, ekki almenningur.“

Keen er sömuleiðis gagnrýninn á íslenska hagkerfið sem hann segir búið til af nýklassískum hagfræðingum. Tekur hann verðtrygginguna sem dæmdi.

„Ég get auðvitað hnykkt á hvers vegna þetta er heimskulegt því það sem gerist í verðbólgu er að skuldir manns hækka og ef verðbólga er heima fyrir og gjaldmiðillinn fellur þá tvöfaldast skuldirnar. Og skuldirnar eru borgðar af launatekjum sem ráðast af fjárstreymi í hagkerfinu og þetta er uppskrift að gjaldþroti. Ísland er líklega það land í heiminum sem sárlegast þarfnast skuldauppgjafar og að endurskilgreina fjármálakerfið eins og það á að vera, þar sem skuldir eru skilgreindar á nafnvirði frekar en eins og nú að skuldir eru verndaðar fyrir verðbólgu…Skuldafrí hljómar afar skynsamlega sem og að skilgreina að nýju lánasamninga svo að þeir séu á raunvirði eins og þeir eiga að vera og eins og þeir hafa ætíð verið annars staðar í veröldinni.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is