Suarez er Liverpool til skammar, segir Alex Ferguson. Hvað finnst lesendum Eyjunnar?
Svo virðist sem Luis Suarez, framherjinn knái frá Úrugvæ, geti ekki lengur reimt á sig skóna og hlaupið út á völlinn með liði sínu Liverpool í ensku knattspyrnunni án þess að allt verði gjörsamlega vitlaust. Nú er rifumst um framkomu hans gagnvart frakkanum Patrice Evra fyrir stórleikinn gegn Manchester United í gær og stóra spurningin er: Neitaði Suarez að taka í höndina á Evra, eða er Frakkinn sekur um óíþróttamannslega hegðun að þessu sinni?
Alex Ferguson knattspyrnustjóri Man Utd var ómyrkur í máli eftir leikinn og sagði:
Suarez er knattspyrnufélaginu Liverpool til algjörrar skammar. Hann ætti ekki að fá að leika aftur fyrir félagið. Hann hefði getað efnt til óeirða með framkomu sinni.
Starfsbróðir hans hjá Liverpool og samlandi, Kenny Daglish, varði hins vegar Suarez og kvaðst ekkert vita hvort Suarez hefði neitað að taka í hönd Evra, sem kærði úrugvæann fyrir kynþáttaníð á síðasta ári sem varð til þess að hann var dæmdur í átta leikja bann.
Manchester United yfirspilaði Liverpool á löngum köflum í leiknum og vann verðskuldað, 2:1. Wayne Rooney skoraði bæði mörk heimamanna, en Suarez minnkaði muninn fyrir Liverpool undir lokin.
Rio Ferdinand, fyrirliði Manchester United, segist hafa misst alla virðingu fyrir Suarez eftir atvikið í gær. Leikmennirnir tveir hefðu getað tekist í hendur eins og heiðursmenn og sett þar með gömul deilumál til hliðar, en framkoma Suarez hafi hins vegar gert allt hálfu verra.
Eyjan býður nú lesendum sínum að tjá sig um þetta mál, þar sem skoðanir eru sannarlega mjög skiptar. Á næstunni verður boðið upp á margskonar nýjungar varðandi umfjöllun um íþróttir hér á Eyjunni, þar sem áherslan verður lögð á að leyfa lesendum að tjá sig um liðið sitt og helstu tíðindin í heimi íþróttanna.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
