eyjan.is

Sunnudagur 12.02.2012 - 13:12 - Ummæli ()

Nýtt framboð fram á vígvöllinn: Breiðfylkingin ætlar að taka hart á skuldavanda heimilanna

Þingmenn Hreyfingarinnar standa m.a. að framboðinu.

Nýtt framboð, Breiðfylkingin, verður formlega stofnað í dag. Að framboðinu standa Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn, auk nokkurra einstaklinga úr stjórnlagaráði. Skuldavandi heimilanna verða í brennidepli hjá hinu nýja framboði.

Í dörgum að stefnuskrá flokksins, sem kosið verður um í dag, segir að taka verði á skuldavanda heimilanna með róttætkum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu.  Lausna verði leitað á skuldavandanum á forsendum lántakans frekar en lánveitandans.

Sem dæmi um aðgerðir vill Breiðfylkingin tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum og almenna leiðréttingu húsnæðislána, sem og að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest.

Af öðrum málum vill framboðið leggja drög að stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu og klára aðildarviðræður við ESB og leggja niðurstöðu þeirra í þjóðaratkvæði, án þess að tekin sé afstaða til aðildar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is