Whitney Houston háði langa baráttu við fíkniefnadjöfulinn: Versti óvinurinn er ég sjálf
Heimsbyggðin syrgir nú eina af skærustu stjörnum seinni ára, sem gekk greinilega fram af sjálfri sér í áfengis- og fíkniefnaneyslu og náði ekki fimmtíu ára aldri.
Eins og Eyjan skýrði frá í nótt, er ein þekktasta tónlistarkona síðari ára, Whitney Houston látin. Hún varð aðeins 48 ára.
Talsmaður Houston staðfesti lát hennar seint í gærkvöldi, en dánarorsök hefur ekki verið gefin upp. Hún fannst látin síðdegis á Beverly Hilton hótelinu sama dag og Grammy-tónlistarverðlaunahátíðin fór fram og hafði að sögn ýmissa sjónarvotta djammað ótæpilega nokkur kvöld í vikunni og gengið vasklega inn um gleðinnar dyr.
Houston var um árabil ein vinsælasta söngkona veraldar, en hefur einnig leikið í kvikmyndum. Alls hafa plötur hennar selst í um 170 milljónum eintaka.
Meðal þekktustu laga Houston má nefna topplögin Saving All My Love for You, Greatest Love of All og Where Do Broken Hearts Go, sem öll komust í efsta sæti vinsældarlistans vestanhafs. Plata hennar úr kvikmyndinni Bodyguard, þar sem hún lék einnig á móti Kevin Costner, er ein af tíu söluhæstu hljómplötum allra tíma.
Whitney var dóttir söngkonunnar Cissy Houston, fædd 9. ágúst 1963, í Newark, New Jersey í Bandaríkjunum. Hún var uppgötvuð um tveimur áratugum síðar á næturklúbbi í New York, þar sem hún vann fyrir sér sem söngkona.
Whiney Houston glímdi við áfengis- og vímuefnafíkn. Hjónaband hennar og Bobby Brown var vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla, þar sem eiturlyf og ofbeldi komu oft við sögu. Þau skildu fyrir nokkrum árum og í fyrra var greint frá því í fréttum að Whitney Houston hefði farið í meðferð til að vinna bug á fíkn sinni.
Houston mun hafa verið gestur á hótelinu þar sem hún lést.
Fjöldi fréttamanna og ljósmyndara var á hótelinu vegna Grammy-hátíðarinnar og varð mikið uppnám þegar öryggisverðir hótelsins hringdu á lögreglu kl. 15.43 í gærdag á staðartíma í Los Angeles og tilkynntu um lát söngkonunnar. Lífgunartilraunir báru ekki árangur.
Á þessu stigi málsins eru engar grunsemdir uppi um að lát söngkonunnar hafi borið að með óeðlilegum hætti. Dánarorsök liggur þó ekki fyrir. Bandaríska slúðuvefsíðan TMZ greindi frá því að söngkonan hafi djammað ótæpilega í borginni undanfarin kvöld. Hún hafi gripið í míkrafóninn og tekið lagið þar sem hún var að skemmta sér í Hollywood á fimmtudagskvöld og kvöldið eftir fór mikið fyrir henni á hótelbar í borginni.
Bakgrunnur Houston í tónlist lá í sálarmúsík og trúarlegri gospel tónlist. Móðir hennar var ekki aðeins söngkona, heldur var hún náskyld sjálfri Dionne Warwick og guðdóttir Aretha Franklin.
Á hátindi ferils síns var Whitney Houston vinsælasta söngkona veraldar. Hún vann til ótal verðlauna, átti fjölmörg topplög og var fyrirmynd kvenna um allan heim. Fjölmargar söngkonur tóku hana sér til fyrirmyndar, tónlistargagnrýnandinn Paul Gambaccini sagð við BBC að Maria Care og Christina Aguilera hefðu báðar reynt að herma eftir henni, án árangurs.
Hún lék einnig í kvikmyndum með misgóðum árangri, en hin síðari ár setti stormasamt hjónaband hennar og Bobby Brown feril hennar í uppnám, auk þess sem hjónin áttu greinilega í miklum vanda vegna ofneyslu áfengis og eiturlyfja.
Þau skildu árið 2007 og eiga dótturina Bobbi Kristina saman.
Houston ræddi stundum veikindi sín opinberlega. Í viðtali við fréttakonuna Diane Sawyer viðurkenndi hún að versti óvinur hennar væri hún sjálf.
Kántrísöngkonan fræga Dolly Parton – sem samdi hið ódauðlega lag „I Will Always Love You“, sem Whitney Houston gerði svo vinsælt – sagðist í yfirlýsingu vera miður sín yfir þessum sorglegu tíðindum.
Ég er aðeins ein þeirra sem finn nú fyrir sorg í hjartanu vegna láts þessarar merku konu. Ég verð ávallt full þakklætis fyrir flutning hennar á laginu mínu og get sagt frá mínum dýpstu hjartarótum: ‘Whitney, I will always love you. Þín verður sárt saknað.“
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur minnist söngkonunnar með þessum orðum á fésbókinni:
Þótti mikið til um Whitney. Söngstíll hennar er að vísu óbærilegur hjá hennar óteljandi lærimeyjum, þessi tegund af kólóratúr-soul-flúri sem drekkir litlum melódíur í sýrópi, en hún komst upp með þetta af því að hún var svo músíkölsk og smekkvís og með tímasetningar svo magnaðar. Og hún var svo fögur, svo óumræðilega flott á sviði. Skildi aldrei af hverju hún þurfti að sanna fyrir samfélaginu að hún gæti líka notað eiturlyf. Sem hún gat ekki.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
