Almenningur mótfallinn Vaðlaheiðargöngum. 47 prósent á móti en 28 prósent með
Íslenskur almenningur er ekki ýkja spenntur fyrir að ríkið ráðist í gerð Vaðlaheiðarganga ef marka má niðurstöður í nýrri skoðanakönnun. Hún sýnir að 47 prósent eru mótfallin þeirri framkvæmd og aðeins 28 prósent þeim fylgjandi.
Þetta sýna svör í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins vegna málsins en tæplega 92 prósent um 800 þátttakenda tóku afstöðu til spurningarinnar hvort ráðast ætti í gerð ganganna í einkaframkvæmd með ríkisábyrgð.
Töluverður munur var á afstöðu fólks á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu til málsins. Þannig eru 42,1 prósent fólks úti á landi hlynnt gerð Vaðlaheiðarganga en sé aðeins litið til svara fólks af höfuðborgarsvæðinu var stuðningur við gangagerðina aðeins 24,6 prósent.
Í heildina voru 15,1 prósent því mjög fylgjandi að byggja göngin og 13,1 prósetn frekar fylgjandi. 17,7 prósent sögðust frekar andvíg og 29,5 prósent mjög andvíg. Hartnær fjórðungur svarenda var hvorki fylgjandi né á móti byggingu Vaðlaheiðarganga í einkaframkvæmd með ríkisábyrgð.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

