Biður foreldra sína á áttræðisaldri afsökunar – Eftir á að hyggja hefði áhættufíknin borgað sig

Þrýstingurinn á stjórnvöld um að grípa til aðgerða vegna verðtryggðra lána eykst dag frá degi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
„Fyrirgefiði mér, kæru foreldrar. Eftir á að hyggja hefði áhættufíknin borgað sig,“ segir Friðrik Jónsson sem árið 2007 ráðlagði foreldrum sínum að breyta erlendu láni yfir í íslenskt, verðtryggt lán. Afleit ráðgjöf, segir Friðrik.
Eftir gengislánsdóm Hæstaréttar í gær hefur myndast mikill þrýstingur á stjórnvöld um að grípa til aðgerða til handa þeim hópi sem tóku verðtryggð lán. Sagði Margrét Tryggadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, við Eyjuna í gær að næsta mál á dagskrá væri einmitt verðtryggðu lánin.
Friðrik lýsir á bloggi sínu hér á Eyjunni hvernig foreldrar hans hefðu verið mun betur staddir ef hann hefði ekki ráðlagt þeim að breyta erlenda láninu þeirra yfir í verðtryggt, árið fyrir hrun. Þótti honum full mikil áhætta fyrir gömlu hjónin að taka áhættu á gengissveiflum. Lánið höfðu þau tekið tl að greiða fyrir viðhald á húsi þeirra.
Frá því að þau skiptu gengislánunum yfir í verðtryggt fyrir bráðum 5 árum síðan hefur vísitala lánanna hækkað um rétt tæplega 70%. Höfuðstóllinn um rúmlega það vegna deyfingaráhrifa verðtryggingarinnar, en afborganirnar hækkað umtalsvert engu að síður,
Á sama tíma hafa lífeyrisgreiðslur þeirra lækkað, lyfja- og lækniskostnaður hækkað, skattar hækkað líkt og fasteignagjöld, hiti og rafmagn og matarkostnaður. Engar fá þau vaxtabæturnar því lánið var ekki tekið „vegna kaupa á íbúð“.
En samkvæmt nútímajafnaðar- og vinstrimennsku eru þau fólkið „sem geta borgað“. Þau fá þannig enga leiðréttingu á sínum lánum og horfa upp á höfustól fasteignaveðlánanna éta upp eign þeirra í húsinu sínu um hver mánaðarmót.
Friðrik segir ljóst að foreldrar hans væru í mun betri málum ef ekki hefði verið fyrir þessa afleitu ráðgjöf hans.
En, eins og aðrir hóflega skuldsettir og varfærnir íslendingar í fjötrum verðtryggðra lána, virðast engar áætlanir um að rétta af þeirra hlut.
Fyrirgefiði mér, kæru foreldrar. Eftir á að hyggja hefði áhættufíknin borgað sig.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
