eyjan.is

Fimmtudagur 16.02.2012 - 20:35 - Ummæli ()

Steindi á fóninn og gullkeðja um hálsinn. Guðmundur átti hagsmuna að gæta en hverjir aðrir?

Guðmundur Steingrímsson þingmaður átti ýmislegt undir þegar Alþingi ræddi um vaxtastig á gengislánum 2010

Guðmundur Steingrímsson, óháður þingmaður, undraðist það þegar Alþingi ræddi um það hvaða vaxtastig skyldi vera á gengisbundnum lánum í desember 2010 hvort og þá hvaða þingmenn ættu kannski beinna hagsmuna að gæta í málinu. Sjálfur hafði hann mikla hagsmuni af því máli og var því fjarverandi við atkvæðagreiðslu vegna málsins á sínum tíma.

Steig Guðmundur í pontu við umræður um gengislánadóm Hæstaréttar á Alþingi í dag og hóf mál sitt á að rifja upp að hann sjálfur hefði haft mikla hagsmuni í því máli enda sjálfur breytt öllum sínum lánum í gengislán árið 2007.

[...] engin önnur ákvörðun hefur haft jafnmikla beina þýðingu fyrir heimilisrekstur minn og hún þannig að ég ákvað að vera fjarverandi við atkvæðagreiðsluna. Mér fannst athyglisvert að í allri umræðunni um hagsmunatengsl og annað fór enginn fjölmiðill yfir það hverjir ættu hagsmuna að gæta þar.

[...] Maður getur verið í tvennum buxum í þessu. Ég get annars vegar verið eiginhagsmunaseggur og sett Steinda á fóninn þegar ég kem heim, sett gullkeðju um hálsinn og „dsjing, dsjing“ og fagnað og farið síðan hlæjandi alla leið í bankann ef mér verða skyndilega dæmdir samningsvextir í gegnum allt hruntímabilið þar sem voru yfir 20% óverðtryggðir vextir, þá er það einhvern veginn „þetta reddast“, 2007-hugarfarið, sem kemur mér þá til góða. Gott og vel. Hins vegar þurfum við líka að vera í pólitísku buxunum og ég geri kröfu til þessarar samkomu að við séum það.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is