Hrunið 2008 verður hjóm eitt er „skolpræsahernaðurinn“ rústar réttarríkinu, segir lögmaður
„Skolpræsahernaður bloggheima, með DV og álíka pappíra sem hina helgu bók að vopni, njóta þess að traðka í svaðið allar grundvallarreglur réttarríkisins og snúa öllu á hvolf. Það versta er að kerfið sjálft virðist vera að sogast niður í skolpræsið með þessu öllu saman.“
Svo mælir hæstaréttarlögmaðurinn Helgi Jóhannesson í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið. Hann óttast að efnahagshrunið 2008 „verði hjóm eitt“ miðað við það sem verður ef réttarríkinu er rústað.
Helgis segir hrunið hafa vakið upp drauga sem valda þjóðfélaginu mun meira tjóni en sjálft hrunið gerði enda, að hans mati, fóru einungis peningar í súginn þá.
Upp úr því svekkelsi öllu saman er nú sprottinn einhver furðulegasti anarkismi sem um getur og engu eirir. Meinsemdin er mikil og þjóðin virðist verið komin á enn eitt meðvirknisfylleríið, löngu búin að missa sjónar á því hvað er rétt og rangt að gera og segja,
segir Helgi og bætir við að ráðist sé að réttarríkinu úr öllum áttum.
Það versta er að kerfið sjálft virðist vera að sogast niður í skolpræsið með þessu öllu saman. Alþingi og ríkisstjórn auðvitað löngu búin að missa fótanna og enginn man lengur að Alþingi er löggjafarsamkoma þjóðarinnar, einn af hornsteinunum, en ekki framleiðsluverksmiðja fyrir bitlausa „populistalöggjöf“ sem engu skilar almenningi nema fölskum vonum og er að auki á góðri leið með að veita atvinnulífinu náðarhöggið.
Máli sínu til stuðnings nefnir Helgi málshöfðunina gegn Geir H. Haarde og það að ráðamenn og mikilsmetandi lögfræðingar tali um að það sé gott fyrir hann að sitja undir ákæru svo hann geti sannað sakleysi sitt.
Nálægt 300 manns hafa réttarstöðu grunaðs svo árum skiptir hjá sérstökum saksóknara. Menn þar á bæ telja að það sé í raun miklu betra fyrir menn að hafa þá réttarstöðu en stöðu vitnis því það sé svo mikil vernd falin í hinu fyrrnefnda. Ég er ekki viss um að þeir sem í hlut eiga og ekki fá vinnu vegna réttarstöðunnar séu á sama máli.
Gagnrýni Helga beinist fyrst og fremst að stjórnvöldum sem hann segir ekki hafa dug eða þor til að standa í lappirnar gegn þessari þróun.
Þau ýta bara undir dómstólameðferð götunnar með því að fagna opinberlega handtökum og ákærum sem gefnar eru út og láta engu skipta grundvallarreglur eins og þær að menn teljist saklausir þar til sekt er sönnuð. Efnahagshrunið 2008 mun verða hjóm eitt í samanburði við það sem verður ef það tekst að rústa réttarríkinu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
