eyjan.is

Föstudagur 17.02.2012 - 12:30 - Ummæli ()

Lætur „reiða lögmenn“ heyra það – Þúsundir Íslendinga hafa mun meiri ástæðu til að reiðast

„Það er með ólíkindum að lögmenn, sem alþjóð veit að þjónuðu þessum sömu viðskiptasnillingum, skuli dirfast að halda uppi vörnum fyrir þá nú þegar þjóðin er að berjast við skelfilegar afleiðingar kreppunnar.“

Þetta segir Guðbjörn Guðbjörnsson í pistli á Eyjunni sem ber yfirskriftina Reiðir lögmenn. Svarar hann þar með hæstaréttarlögmanninum Helga Jóhannessyni sem skrifaði grein í gær þar sem hann fann stjórnvöldum, fjölmiðlum og bloggurum allt til foráttu.

Guðbjörn bendir á að undanfarin ár hafi reiðir lögmenn tekið upp hanskann fyrir þá sem steyptu Íslendingum í skuldir uppá tífalda þjóðarframleiðslu sem á endanum settu bankana og landið á hausinn. Nokkrir úr þessum hópi hafa síðan óskapast yfir því að fjölmiðlar og bloggarar skuli sýna hugsanlegum lögbrotum áhuga.

Guðbjörn bendir á að það eru fleiri sem hafa ástæðu til að vera reiðir en bara lögmenn.

Það má vel vera að um 300 manns séu atvinnulausir af því að þeir eru með stöðu grunaðs manns eða vitnis hjá Sérstökum saksóknara, en það er kannski vert að minnast þess að 10-15.000 manns eru atvinnulausir eða hafa yfirgefið landið vegna þess hruns án þess að hafa nokkuð til saka unnið. Að auki má benda á að samkvæmt upplýsingum Ríkisskattstjóra er hlutfall þeirra sem eru með neikvæða eignastöðu um 40%. Það eru fleiri reiðir en íslenskir lögmenn og útrásarstjórnmálamenn og hafa kannski meiri ástæðu til þess.

Pistill Guðbjörns í heild.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is