eyjan.is

Föstudagur 17.02.2012 - 09:00 - Ummæli ()

Skipar Páli Óskari að taka sér pásu – Orðinn svo fullur af sjálfum sér að honum stafar nánast hætta af

Óskar Hrafn segir nákvæmlega það sem honum finnst um Pál Óskar í Fréttatímanum.

„Þetta var allt vont – dæmi um mann sem er orðinn svo fullur af sjálfum sér að honum stafar nánast hætta af því. Gerðu okkur öllum greiða og ekki síst þér sjálfum: Taktu þér pásu, Palli!“

Þetta hörðu ummæli lætur Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Fréttatímans, falla í sjónvarpsumfjöllun blaðsins þar sem hann gefur útsendingu RÚV frá Eurovision einungis eina stjörnu.

Þessi orð koma eins og þruma úr heiðskíru lofti, enda Páll Óskar einn allra ástsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar. Óskar, sem sjaldnast liggur á skoðunum sínum, viðurkennir reyndar að hann hafi sjálfur dáðst af einlægni hans og undraverðum hæfileikum, en nú sé komið nóg.

Hann hefur bulið á okkur í útvarpinu, sjónvarpinu og í auglýsingum. Flestum til mikillar gleði. En það kemur sá tími í lífi hvers manns að hann þarf að yfirgefa sviðsljósið bæði sjálfum sér og öðrum til heilla.

Óskar Hrafn segir að miðað við frammistöðu Páls Óskars síðastliðið laugardagskvöld, þá sé sú stund runnin upp í lífi poppstjörnunnar.

Honum lá alltof hátt rómur í kynningunum, líkt og hann gerði sér ekki grein fyrir því að kveikt væri á hljóðnemanum sem lá meðfram fagursminkuðum vanga hans, og fas hans og hegðun bar það með sér að enginn átti að velkjast í vafa um að hann væri aðalmaðurinn. Brynja Þorgeirsdóttir, sú góða kona, var hækja Páls Óskars þetta kvöldið,

segir Óskar Hrafn og bætir í:

Það var í besta falli ósmekklegt þegar hann auglýsti tónleika sína á Selfossi seinna um kvöldið í miðri kynningu og þá var brogað málfar hans ekki til eftirbreytni. Á tímabili hélt ég að Haffi Haff væri kominn í hlutverk kynnis vegna enskuskotinna setninga sem runnu viðstöðulaust út úr munni Páls Óskars. Í stuttu máli. Þetta var allt vont – dæmi um mann sem er orðinn svo fullur af sjálfum sér að honum stafar nánast hætta af því. Gerðu okkur öllum greiða og ekki síst þér sjálfum: Taktu þér pásu, Palli!


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is