Davíð Þór: Af hverju fárást enginn yfir þegar par gerir dodo meðan Rósa frænka er í heimsókn?
„Af einhverjum ástæðum virðast þeir, sem mest er í nöp við hommaskap, alveg láta hjá líða að berjast með sama offorsi gegn því að fólk sé að gera dodo þegar Rósa frænka er í heimsókn – þótt Guð þeirra hafi alveg jafnmikla andstyggð á því.“
Davíð Þór Jónsson, guðfræðingur, er í pistli hugsi yfir þeim er beita fyrir sig biblíunni til að færa rök fyrir eigin fordómum en horfa jafnframt alfarið framhjá öðrum atriðum sem ekki henta.
Tekur Davíð dæmi af fólki sem segir samkynhneigð synd og fordæmir slíkt eins og Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, hefur gert á bloggi sínu en hann var í kjölfarið sendur í launað leyfi frá starfi sínu sem kennari við Brekkuskóla.
Davíð segir rétt sem Snorri heldur fram að Gamla testamentið segi að kynlíf tveggja karlmanna sé viðurstyggð. Hins vegar fárist enginn yfir næstu línu í þeirri sömu bók þar sem fram komi að fólk skuli ekki sofa hjá á meðan konan er á túr.
Af einhverjum ástæðum virðast þeir, sem mest er í nöp við hommaskap, alveg láta hjá líða að berjast með sama offorsi gegn því að fólk sé að gera dodo þegar Rósa frænka er í heimsókn – þótt Guð þeirra hafi alveg jafnmikla andstyggð á því.
Þeir, sem byggja vilja hjónabandsskilning sinn á Gamla testamentinu, verða auk þess að samþykkja fjölkvæni, kynlífsþrælkun og nauðungarstaðgöngumæðrun og að nauðgari geti komist hjá refsingu með því að kvænast fórnarlambi sínu og greiða föður þess skaðabætur.
Þeir, sem beita Gamla testamentinu fyrir sig í þessari umræðu, eru greinilega að velja það sem hentar fordómum þeirra úr safni fyrirmæla sem þeim dettur ekki í hug að taka önnur ákvæði úr alvarlega.
Þeir, sem lesa Gamla testamentið með þessum hætti, mættu hafa hina kristilegu grundvallarafstöðu í huga: „Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

