eyjan.is

Sunnudagur 19.02.2012 - 09:30 - Ummæli ()

Gunnar er „crime buster“ af gamla skólanum – Ég spái flugeldasýningu

„Ég spái flugeldasýningu,“ segir Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor, um eftirleikinn af brottrekstri Gunnars Þ. Andersen. Hann vonast til að efnahags- og viðskiptaráðherra setji af stjórn FME og ógildi uppsögnina.

Þorvaldur hefur ekki farið leynt með vonbrigði sín yfir brottrekstri Gunnars. Hann skrifaði til að mynda opið bréf til Evu Joly þar sem hann segir lögmann eins eiganda Glitnis hafa verið á höttunum eftir Gunnari í langan tíma. Síðan hafi stjórn FME loks fengið það sem hún vildi þegar hún bað annan „vel tengdan“ lögmann um að meta hæfi hans, jafnvel þótt ekkert nýtt hafi komið fram.

Segist hann fullviss um að ef ákvörðunin verði látin standa muni það grafa undan orðspori Íslands á alþjóðavettvangi.

Eyjan birti í gær frétt þar sem segir að þeir Ástráður Haraldsson og Ásbjörn Björnsson, sem skrifuðu margumrædda álitsgerð, telja að erfitt verði að finna hæfan mann í starfið. Að minnsta kosti ættu menn með nauðsynlega reynslu úr viðskiptalífinu í erfiðleikum með að standast jafn ítarlega rannsókn og gerð var á hæfi Gunnars.

Þorvaldur ritar athugasemd við færsluna þar sem hann segir:

Gunnar Andersen kemur mér fyrir sjónir sem „crime buster“ af gamla skólanum (Kevin Kostner ætti að leika hann, bólstraður, ef Baltasar Kormákur gerði Hollywoodmynd um málið). Gunnar hafði ekki verið í Tryggingastofnun nema eina viku eða svo, þegar hann fletti ofan af 75 mkr. tryggingasvikum eins og sagt var frá í fréttum á sínum tíma.

Þorvaldur bendir á að Gunnar hafi „flogið í gegnum“ hæfnisprófið sem stjórn FME lagði fyrir alla 19 umsækjendurna og hann ráðinn á þeim grundvelli. Hann hafi bæði verið ótengdur og óflokksbundinn.

Það er frekar sjaldgæft á Íslandi, að hæfasti umsækjandinn sé ráðinn í opinbert starf, en það gerðist í FME. Og nú, 77 málum síðar, virðist norræna velferðarstjórnin ætla að láta það viðgangast, að honum sé sagt upp skv. kröfu þeirra, sem hann hefur rannsakað og eiga harma að hefna. Ég spái flugeldasýningu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is