eyjan.is

Mánudagur 20.02.2012 - 12:00 - Ummæli ()

Reiði Íslendinga að skila árangri – Ísland á heimsmet í niðurfellingu skulda heimila

Lars Christensen segir að Ísland eigi heimsmet í niðurfellingu skulda heimila.

„Það mætti með réttu segja að Ísland eigi heimsmetið í skuldaniðurfellingu heimila,“ segir Lars Christensen, yfirmaður greiningardeildar Danske Bank.

Bloomberg fréttaveitan fjallar í dag um niðurfellingu skulda íslenskra heimila. Þar segir að íslenska þjóðin sé nú að njóta ávaxta reiðiöldunnar sem gekk yfir samfélagið í búsáhaldabyltingunni.

Vitnað er til samantektar Samtaka fjármálafyrirtækja þar sem segir að búið sé að fella niður skuldir sem samsvara 13 prósent af landsframleiðslu.

Ísland er skólabókardæmi um það sem þarf að gera í krísu. Hvaða hagfræðingur sem er getur tekið undir það,

segir Christensen. Bent er á að hagvöxtur á Íslandi í ár verði meiri en á evrusvæðinu og yfir meðaltali á heimsvísu, samkvæmt spá OECD. Ísland sé nú álíka jafn líklegt og Belgía að lenda í greiðslufalli.

Lærdómurinn sem hægt er að draga af Íslandskrísunni er sá að ef önnur ríki telja að nauðsynlegt sé að færa niður skuldir, þá ættu að horfa til þess hversu farsæl 110 prósent leiðin var hér,

segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ. Ekki taka allir undir orð Þórólfs, þeirra á meðal Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, sem efast um að upplýsingar bankanna séu áreiðanlegar.

Það bendir margt til þess að sumar þessara fjármálastofnana sem umræðir hafi ekki tapað krónu á þeim úrræðum sem gripið hefur verið til.

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir við Bloomberg að vissulega séu margir í greiðsluerfiðleikum, en á sama tíma séu margir á góðu róli.

Það er nær ómögulegt að segja til um hvenær nóg er komið; Í hvert sinn sem gripið er til aðgerða koma fram nýjar kröfur um aðgerðir.

Frétt Bloomberg.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is