eyjan.is

Þriðjudagur 21.02.2012 - 17:36 - Ummæli ()

Drómi harmar vinnubrögð Umboðsmanns skuldara – Er fær um að leysa málin sjálf

Umboðsmaður skuldara kvartaði undan vinnubrögðum Dróma í Kastljósi í gær.

Drómi hf. hafnar því með öllu að félagið kom illa fram við skuldara og gerir alvarlegar athugasemdir við málflutning Umboðsmanns skuldara í Kastljósi í gær.

Kastljós fjallaði um starfshætti Dróma þar sem Umboðsmaður skuldara, Ásta Sigrún Helgadóttir, gerði grein fyrir því að fjölmargir aðilar hafi kvartað undan slælegum vinnubrögðum fyrirtækisins. Höfðu embættinu borist kvartanir frá skuldurum, lögmönnum, fasteignasölum og fulltrúum Íbúðalánasjóðs.

Í tilkynningu segist Drómi gera alvarlegar athugasemdir við fullyrðingar Ástu Sigrúnar, sem ekki ekki mátti skilja á annan veg en að hjá Dróma fengju skuldarar ýmist enga eða síðbúna lausn sinna mála.

Þetta er alrangt. Drómi hefur lagt áherslu á uppbyggileg samskipti við embætti Umboðsmanns skuldara með það fyrir augum að leysa úr þeim álitamálum sem upp koma og færa mál til betri vegar þar sem það á við. Það hefur hins vegar vakið bæði vonbrigði og furðu að Umboðsmaður skuldara hefur kosið að reka fremur áróður í fjölmiðlum og fara fram með almennum staðhæfingum um vafasama viðskiptahætti, í stað þess að upplýsa Dróma um efnislegar kvartanir þannig að úr þeim megi leysa. Drómi hefur ítrekað skorað á Umboðsmann að upplýsa um þær kvartanir sem hún hefur fjölyrt um í fjölmiðlum, en hún hefur kosið að verða ekki við því.

Það vekur einnig furðu að Umboðsmaður skuldara kjósi að skilgreina hlutverk sitt gagnvart skuldurum svo þröngt að það felist í því að áframsenda kvartanir til annars stjórnvalds, í stað þess að leysa úr málunum sjálf í samstarfi við viðkomandi lánafyrirtæki. Á meðan starfsmenn Dróma fá ekki upplýsingar um þau mál sem staðhæfingar Umboðsmanns vísa til, er ókleift að svara þeim eða vinna að lausn þeirra.

Í tilkynningunni segir jafnframt að starfsmenn Dróma hafi átt tvo fundi með Umboðsmanni skuldara á síðustu fimm vikum. Þar hafi verið borin upp fimm mál sem öll hafi verið útskýrð eða leyst. Það staðfesti fundagerðir.

Drómi hf. harmar að Umboðsmaður skuldara skuli kjósa að viðhafa slík vinnubrögð. Drómi fagnar því hins vegar að málið komist á faglegan vettvang, þar sem unnt er að svara athugasemdum á málefnalegan hátt, þó æskilegra væri að geta átt slík samskipti við Umboðsmann skuldara og leysa með því úr málunum á skjótari hátt.

Loks vill Drómi árétta að félagið fer að öllum almennum úrræðum í þágu skuldara og starfsmenn félagsins leggja sig fram við að finna viðeigandi lausn á málefnum viðskiptavina.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is