eyjan.is

Þriðjudagur 21.02.2012 - 21:34 - Ummæli ()

Er fiskur ekki matur? Áhersla á innlendan landbúnað leiðir ekki til fæðuöryggis fyrir þjóðina

Fæðuöryggi er víðtækt hugtak sem Valur Þráinsson segir stjórnmálamenn verða að ræða af heiðarleika

Ýmis rök hníga til þess að að innlend landbúnaðarframleiðsla eigi sér góðan grundvöll áfram þótt innflutningur á erlendum vörum yrði gefin frjáls þvert á það sem margir halda. Reynslan sýnir að garðyrkjubændum gengur mætavel þó engir séu lengur tollar á tómötum, gúrkum og paprikum.

Ungur hagfræðinemi, Valur Þráinsson, leggur orð í belg um matvælaöryggi Íslands og þau orð hagsmunaaðila að innlendur landbúnaður sé dauðadæmdur þurfi hann að keppa á frjálsum markaði við vörur erlendis frá.

Í pistli segir hann svo ekki endilega vera og telur í raun kjánalegt að tala um matvælaöryggi hjá lítilli þjóð með mikinn fisk í sjónum og vísar þar til orða Steingríms J. Sigfússonar, efnahags-, viðskipta- og landbúnaðarráðherra.

llskiljanlegt er hvers vegna ráðherrann telur það ekki geta þjónað hagsmunum Íslendinga að íslenskir neytendur njóti sömu kjara á landbúnaðarvörum og þekkist í nágrannalöndunum. Órökstudd er sú fullyrðing hans að íslensk landbúnaðarframleiðsla eigi sér ekki grundvöll ef innflutningur væri óheftur.

Háir innflutningstollar og ríkisstyrktur landbúnaður eru ekki til þess fallnir að tryggja fæðuöryggi Íslendinga. [...] Þá mætti hins vegar spyrja: af hverju ríkið gæti ekki eins átt birgðir matvæla? Eða enn frekar, af hverju ætti fiskútflytjandinn Ísland að hafa áhyggjur af því að svelta? Er ekki fiskur matur?

Valur segir að séu stjórnmálamenn sannarlega áhyggjufullir vegna matvælaöryggis landsins sé ráð að takast á við það af heiðarleika hvað það kostar og með hvaða leiðum hægt verði að tryggja öllum mat í landinu í ótiltekinn tíma. Tollvernd í þessu tilliti sé fráleit.

Auðveldlega er hægt að halda til haga byggðasjónarmiðum og fæðuöryggi á sama tíma og neytendum er gefið meira frelsi til þess að geta valið hvort þeir vilji kaupa innlenda eða erlenda landbúnaðarvöru. Ef stjórnmálamönnum er alvara með því að tryggja fæðuöryggi þyrfti að takast á við það af heiðarleika hvernig best er að búa sig undir það ef verslun við umheiminn mundi skyndilega lokast. Það verður tæplega gert með landbúnaði sem er alfarið háður innfluttum aðföngum.

Nauðsynlegt er að takast á við þá spurningu hvaða landbúnað Íslendingar vilja, hvaða hlutverki hann á að gegna og hvað þeir eru tilbúnir að greiða fyrir. Umfang og fyrirkomulag styrkja á að endurspegla þessar óskir þjóðarinnar en ekki fela þær inni í tollvernd. Þá mundi verða mögulegt að aflétta tollum og öðrum innflutningshindrunum sem mundi skila sér í meiri fjölbreytni og lægra vöruverði fyrir neytendur.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is