eyjan.is

Þriðjudagur 21.02.2012 - 17:00 - Ummæli ()

Evrusamstarf „handan við hornið“: Vonast til að verðtryggingu verði aflétt um mitt næsta kjörtímabil

Össur vonast til að krónan verði komin í skjól á miðju næsta kjörtímabili.

Samningsafstaða Íslands í kaflanum um gjaldeyrismál í aðildarviðræðum við ESB liggur fyrir á allra næstu dögum. Utanríkisráðherra segir að gangi allt að óskum verði krónan komin í skjól um mitt næsta kjörtímabil. Það þýði engin gjaldeyrishöft og enga verðtryggingu.

Þetta kom fram í svari Össurar Skarphéðinssonar við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar á Alþingi í dag.

Össur sagði að á næstu dögum, hugsanlega í þessari viku, muni liggja fyrir drög að samningsafstöðu Íslands í sérstökum kafla um myntsamstarf við ESB. Ætlar hann að í þeirri afstöðu komi fram að Íslendingar sæki um að komast í ERM II eins fljótt og auðið er, en ERM II er undanfari þess að taka upp evru.

Össur segir að við það komist íslenska krónan í skjól.

Eitt af því sem við munum þurfa að semja um við Evrópusambandið er er samvinna, aðstoð og liðsinni við að aflétta gjaldeyrishöftum. Það er forsenda þess að við getum gengið í ERM II. En þá er krónan sem sagt komin í það skjól, að þá er búið að aflétta gjaldeyrishöftum, búið að aflétta verðtryggingu, ekki þörf á henni og þar heldur Seðlabanki Evrópu krónunni innnan ákveðinna vikmarka…

sagði Össur sem vonast til að þetta verði að veruleika um mitt næsta kjörtímabil, sem að öllu óbreyttu hefst á næsta ári.

Össur bætti því  að gjaldmiðilssamstarf við ESB samhliða aðildarviðræðum hafi þegar verið rætt, en allar slíkar kröfur séu mótaðar af samningahópnum.

Guðmundur lýsti yfir ánægju með svör Össurar og sagði:

Það er stundum talað eins og mögulegt evrusamstarf, eða gjaldmiðilssamstarf við Evrópusambandið og Evrópska seðlabankann sé bara einhver framtíðarmúsík. Þetta er sem sagt bara handan við hornið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is