Fáránleg eins og ávísun á kanínu upp úr hatti. Bankalán án veða augljóslega fjárdráttur

Mörg dæmi finnast um að stóru bankarnir fyrir hrunið hafi lánað veðlaust fyrir kaupum á eigin bréfum. Hagfræðingur segir slíkt ekki standast nein lögmál bókhalds, viðskipta né hagfræði.
„Lán banka til útvaldra aðila sem kaupa hlutabréf bankans fyrir andvirði lánsins án þess að bankinn taki eðlileg veð í ótengdum eignum er því augljóslega fjárdráttur,“ segir Sveinn Valfells, eðlis- og hagfræðingur, sem finnur ekki ein einustu rök fyrir því að slíkt hafi verið talið eðlilegt á árunum fyrir hrunið.
Hefur Sveinn velt fyrir sér þessum gjörningi sem virðist hafa viðgengist í öllum stóru fjármálastofnunum landsins í aðdraganda hrunsins. Í pistli í Fréttablaðinu kemst hann að þeirri niðurstöðu að slík lán banka feli í sér fjárdrátt og fjársvik og mögulega brot á fleiri lögum landsins.
Með því meinar Sveinn að stjórnendur banka sem lána útvöldum án eðlilegra veða í ótengdum eignum til kaupa á hlutabréfum á sama tíma og þeir afla bankanum fjár stunda klárlega hreinan fjárdrátt nema þeir geri grein fyrir rýrnun eigna bankans sem samsvarar veðlausa láninu. Geri þeir ekki grein fyrir eignarýrnun í bókum bankans og viðkomandi banki sé skráður á markaði hindra stjórnendur eðlilega verðmyndun með hluta- og skuldabréf bankans.
Lán banka til útvaldra innherja til kaupa á bréfum bankans án eðlilegra veða í ótengdum eignum getur því eftir atvikum falið í sér fjárdrátt, fjársvik og jafnvel fleiri brot.
Banki getur ekki tekið fullt veð í eigin bréfum ef hann lánar til kaupa þeirra þó þau gangi kaupum og sölum á markaði. Bréfin rýrna strax og þau eru keypt með láni frá bankanum því þá stendur minna eftir í bankanum.
Fyrir utan hugsanleg lagabrot standast lán banka til kaupa á eigin bréfum engin rök. Banki getur ekki lánað með veði í kröfu á sig sjálfan. Það er ekki hægt, bankinn getur aldrei innheimt sjálfan sig.
Forgangskrafa banka (lán) til kaupa á víkjandi kröfu í sjálfum sér (hlutabréf) án eðlilegra veða í ótengdum eignum stenst engin lögmál bókhalds, viðskipta- eða hagfræði. Hún er jafn fáránleg og ávísun á kanínu í tómum hatti.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
