eyjan.is

Þriðjudagur 21.02.2012 - 19:00 - Ummæli ()

Segir álitsgjafa fjölmiðla spóla fasta í fortíðardrullu – Ófærir um að líta í eigin barm

Álitsgjafar fjölmiðlar minna Jón Aðalstein á sjónvarpsfígúruna Earl Hickey.

„Fáir virðast færir um að líta í eigin barm og iðrast ekki neins,“ segir viðskiptablaðamaðurinn Jón Aðalsteinn Bergsvinsson um álitsgjafa fjölmiðla, sem hann segir pikkfasta í fortíðardrullu. Verstir, að hans mati, eru álitsgjafar í hópi fulltrúa skuldsettra heimila.

Þessa skoðun setur Jón Aðalsteinn fram á vef Viðskiptablaðsins, þar sem hann starfar. Líkir hann álitsgjöfunum við smáglæpamanninn misheppnaða, Earl Hickey, úr bandarísku sjónvarpsþáttunum My Name is Earl.

Sá taldi með kókópuffsrökum þær ógöngur, sem líf hans var komið í, afleiðingar fyrri gjörða.

Um íslensku álitsgjafana segir hann:

Meirihluti þeirra virðast spóla pikkfastir í fortíðardrullu og velta því fyrir sér hvað aflaga fór. Aðrir sjá Satan í verðtryggingu og virðast vita hvað lífeyrissjóðirnir eigi að gera með allt of mikið af peningum í agnarsmáu hagkerfi. Ein tillagan hljóðar upp á að skella öllum lífeyrissjóðunum saman í einn án þess að taka tillit til þess misréttis sem felst í gjörningnum.

Sumir álitsgjafanna eru, að mati Jóns Aðalsteins, alveg úti að aka. Þeir gagnrýni björgunaraðgerðir og heimti að meira verði gert til að laga skuldastöðu heimilanna. Þannig kenni þeir núverandi og fyrri ríkisstjórnum um að fólk hafi keypt fasteignir á uppsprengdu verði og skuldsett sig upp í rjáfur, í sumum tilvikum með lánsfé í erlendri mynt.

Verstir þykja mér þeir álitsgjafar í hópi fulltrúa skuldsettra heimila….

Í hinum hópnum eru fyrrum víkingar í fjármálalífinu sem keyptu fyrirtæki með skuldsettri yfirtöku, á þeim tíma sem gengisvísitalan var óeðlilega lág…

…og væla síðan yfir því að hafa komið illa undan fjárhagslegri endurskipulagningu — í sumum tilvikum misst fyrirtækin í hendur bankanna. Þetta voru jú vel rekin fyrirtæki, að þeirra sögn. Það má vel vera þótt í ljós hafi komið að fyrirtækin gátu ekki á nokkurn hátt staðið undir skuldabyrðinni. Fáir virðast færir um að líta í eigin barm og iðrast ekki neins.

Grein Jóns Aðalsteins á vef Viðskiptablaðsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is