eyjan.is

Þriðjudagur 21.02.2012 - 15:14 - Ummæli ()

Ríkið taki lánasafn Dróma eignarnámi – „Gífurleg vanvirðing“ – Þetta sagði Drómi við Björn

„Það er bara gífurleg vanvirðing í öllum samskiptum,“ segir Andrea Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, um samskipti skuldara við Dróma. Búið er að taka saman 15 mál sem send verða í greinargerð til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem farið verður fram á að slitastjórnin verði leyst upp.

Fjallað var um málefni Dróma í Kastljósi í gær og meðal annars rætt við Umboðsmann skuldara sem hefur borist ítrekaðar kvartanir vegna starfshátta Dróma. Þær koma frá lögmönnum, fasteignasölum, skuldurum og jafnvel starfsmönnum Íbúðalánasjóðs.

Kvartanirnar beinast meðal annars að því að erindum er svarað seint og illa, ef þeim á annað borð er svarað. Þá meta fasteignasalar Dróma eignir skuldara allt að 30 prósentum yfir mati annarra fasteignasala.

Hagsmunasamtök heimilanna ætla að senda greinargerð til Héraðsdóms Reykjavíkur og fara fram á að slitastjórninni verði vikið frá. Í samtali við Eyjuna segir Andrea að í greinargerðinni verði að finna kvartanir frá 15 aðilum. Þær eru af öllum toga.

Það er bara verið að koma illa fram við fólk. Það á bara að hirða allar eignir.

segir Andrea. Þar sem Drómi er í raun þrotabú er það lögbundið markmið félagsins að hámarka virði eigna. Viðskiptavinir hinna föllnu fjármálafyrirtækja, SPRON og Frjálsa Fjárfestingabankans, eru þar af leiðandi í allt annarri stöðu gagnvart sínum lánardrottni en viðskiptavinir annarra viðskiptabanka sem nú starfa á nýrri kennitölu.

Andrea segist velta fyrir sér hvort nærtækasta leiðin sé einfaldlega að ríkið taki lánasöfn Dróma hreinlega eignarnámi.

Í Kastljósi gærkvöldsins sagði Björn Steinbekk, sem kærði starfhætti Dróma til Fjármálaeftirlitsins, að fulltrúi Dróma hafi beinlínis haft hótað að gera fjárhagslegar upplýsingar hans opinberar. Eyjan hefur undir höndum tölvupóst sem Ingólfur Friðjónsson, framkvæmdastjóri Dróma, sendi Birni. Þar segir:

Þar sem þú hefur sjálfur opnað á opinbera umræðu um umsókn þína um svokallaða 110% leið  hér hjá Dróma og gert ágreining um verðmat fasteignar þinnar í því sambandi skora ég á þig og konu þína Ernu Björk Hasler að veita Dróma/Frjálsa heimild  til að gefa upplýsingar um málið opinberlega  með því að birta fyrirliggjandi verðmöt og önnur gögn  er  málið varðar.

Björn fól lögmanni sínum, Sigríði Rut Júlíusdóttir, að svara erindinu þar sem hún segir beiðnina koma á óvart. Björn hafi ekki opnað á umræðu um umsókn sína um 110 prósent leiðina, heldur eingöngu fjallað efnislega um verðmöt sem framkvæmd voru á vegum Dróma. Í svari Sigríðar segir:

Umbj. minn hefur ekkert við það að athuga að Drómi birti umrætt verðmat.  Önnur gögn og upplýsingar um fjármál þeirra hjóna koma umræðunni ekki hætis hót við og umbj. minn hefur hvorki „opnað á opinbera umræðu“ um almenna fjárhagslega stöðu þeirra hjóna né gefið nokkuð tilefni til að um hana sé fjallað.

Ætlar Drómi að fara að svara áleitnum spurningum um verðmöt með því að ræða efnislega um aðrar ótengdar ástæður þess að umsókn umbj. minna var synjað?  Undirrituð fær ekki betur séð en að slíkt væri brýnt brot gegn bankaleynd.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is