Situr ekki undir því að hafa verið óvarfærinn – Reiknivélin sýndi 560 milljónir
Varaformaður Hagsmunasamtaka heimilanna vill ekki sitja undir því að hafa verið óvarfærinn þegar hann tók þá ákvörðun að taka gengistryggt lán. Nær allar forsendur á sínum gáfu til kynna að slíkt lán væri mun ódýrara, jafnvel þótt gengið félli um 100 prósent.
Vilhjálmur Bjarnason skýrir á heimasíðu sinni þá ákvörðun sína hvers vegna hann ákvað að taka 26 milljóna króna gengistryggt lán árið 2005. Segist hann hafa farið í mikla rannsóknarvinnu og skoðað gengi krónunnar 15 ár aftur í tímann.
Reiknivélar bankanna sýndu mér að ég mundi þurfa að borga rétt um 40 m til baka á lánstímanum fyrir þetta erlenda lán og þó ég setti inn að gengið mundi falla um 100 % á lánstímanum, þ.e. kannski 20 % eftir 5 ár, segjum 30 % eftir einhver ár í viðbót og svo koll af kolli út lánstímann þá væru það í mesta lagi um 80 m sem endurgreiðslan væri.
Á þessum tíma var boðið upp á gengistryggð lán með 4,15 prósenta vöxtum. Miðað við 3,5 prósent verðbólgu á út lánstímann reiknaðist Vilhjálmi svo til að heildargreiðslan fyrir lánið yrði 120 milljónir króna.
Ég prófaði að setja inn hver endurgreiðslan á íslenska láninu yrði ef verðbólgan færi upp í 8 eða 9 % og fékk út þá ógnvænlegu tölu 560 milljónir, ekki prentvilla 560 milljónir. þannig að í mínum huga var ég að minnka áhættu mína verulega og fara varlega að mínu mati með því að taka erlent lán með gengisbyndingu eins og það var kallað,
segir Vilhjálmur og bætir við:
Raunar fannst mér ég vera að fara miklu, miklu öruggari leið með því að taka erlenda lánið í stað þess að taka verðtryggt íslenskt lán.
Það sem Vilhjálmur vissi hins vegar ekki að var að síðar meir myndi bankinn fara að vinna gegn krónunni sem olli stórkostlegu falli hennar og hækkaði um leið lán hans um 150 prósent.
Auðvitað þarf að leiðrétta stökkbreytt verðtryggð lán heimilanna líka því þau hafa hækkað um c.a. 40 % frá 1.1.2008. Það var búið að bjóða bönkunum og ríkisstjórninni alls konar lausnir í millitíðinni sem þau ekki þáðu og töldu sig geta komist upp með að rukka alla, bæði gengis og verðtryggða lántakendur um stökkbreyttar skuldir sínar vegna samstöðuleysis íslensku þjóðarinnar og með því að æsa þessa aðila upp, hvora á móti öðrum.
En núna held ég að fólk sé búið að fá nóg og muni ekki láta bjóða sér þetta lengur.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
