Algjör trúnaðarbrestur: Stjórn FME vildi Gunnar strax út úr húsi
Það lá fyrir strax á föstudaginn að það var skýr vilji stjórnar Fjármálaeftirlitsins að víkja Gunnari Þ. Andersen frá störfum. Það kemur fram í bréfi sem stjórn FME sendi Gunnari fyrir helgi. Stjórnarformaður FME sagði allt annað í viðtölum eftir helgi.
Í viðtali við Fréttablaðið á mánudaginn sagði Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, að staða Gunnars væri enn óljós, en tók skýrt fram að hann hafði ekki verið rekinn.
Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að segja Gunnari upp störfum og ég veit ekki hvort sú ákvörðun verði tekin.
Allt annað má lesa út úr bréfi sem stjórn FME sendi Gunnari föstudaginn 17. febrúar. Bréfið er ritað eftir að lögmaður Gunnars, Skúli Bjarnason, skýrði afstöðu Gunnars fyrir stjórninni. Í bréfinu, sem Aðalsteinn, Arnór Sighvatsson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifa undir fyrir hönd stjórnar FME, segir:
Af efni bréfsins verður ráðið að þú hafir ekki hug á að hafa samstarf við stjórn FME um lyktir mála. Með því að nú er ljóst orðið að ekki verður af samkomulagi milli FME og þín um starfslok er þér með þessu bréfi kynnt sú fyrirætlan stjórnar FME að segja þér upp störfum sem forstjóra stofnunarinnar. Uppsögnin er með sex mánaða fyrirvara frá næstu mánaðamótum í samræmi við ákvæði ráðningarsamnings þíns. Þá er það jafnframt fyrirætlan stjórnar að lýsa því yfir að ekki verði óskað eftir vinnuframlagi þínu á uppsagnartímanum.
Í bréfinu fer sem sagt ekki á milli mála að Gunnar var rekinn á föstudaginn. Í bréfinu eru sjónarmið stjórnar FME útskýrð enn frekar og sagt að forsendur fyrir áframhaldandi ráðningu Gunnars séu brostnar.
Ljóst er orðið af því sem fram hefur komið af ítarlegum rannsóknum á aðkomu þinni af málefnum Landsbankans á árinu 2001 að þú hefur að mati stjórnar FME átt þátt í aðgerðum sem voru til þess fallnar að villa um fyrir stofnuninni við eftirlit hennar með málefnum bankans.
Loks segir í bréfinu að málið sé þannig vaxið að útlokað sé að byggja upp gagnkvæmt traust á ný.
Ekki þarf að rökstyðja ítarlega hversu óheppileg þessi staða er fyrir starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Eðlilegt er að mjög ríkar kröfur um vammleysi og flekklausan feril séu gerðar til þess manns sem gegnir forstjórastöðu stofnunarinnar. Þá er það jafnframt mat stjórnar FME að eðli þess ágalla sem með þessu er á áframhaldandi ráðningu þinni sé þannig að ekki sé unnt að bæta úr og að ekki sé um tímabundið ástand að ræða eða ástand sem er líklegt að muni lagast með tímanum.
Gunnar hefur frest fram til morguns til að koma andmælum sínum á framfæri við stjórnina.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
