Borgaði 600 þúsund krónur í skatt í síðasta mánuði – Vill ólmur selja lánasafn Dróma
Formaður slitastjórnar Spron og Frjálsa fjárfestingabankans segir lánasafn Dróma til sölu. Hann borgaði 600 þúsund krónur í skatt í síðasta mánuði og segir það fjarstæðu að verið sé að tefja slitameðferðina til að hala inn laun.
Hlynur Jónsson, formaður slitastjórnar Spron og Frjálsa fjárfestingabankans var gestur Kastljóss í kvöld, þar sem hann svaraði þeim ávirðingum sem bornar hafa verið á Dróma.
Stjórnandi þáttarins, Jóhannes Kr. Kristjánsson, sagði að eftir umfjöllun Kastljóss hafi kvörtunum rignt inn til Umboðsmanns skuldara. Hlynur sagði það ekki koma sér á óvart, enda hafi beinlínis verið auglýst eftir kvörtunum.
Það kemur ekki á óvart ef kvartanir hafa borist núna, á síðustu tveimur dögum þar sem að málefni þessa fyrirtækis hafa verið í umræðunni með þeim hætti sem raun ber vitni. Það var beinlínis auglýst eftir kvörtunum af hálfu fyrrverandi viðskiptaráðherra í Kastljósi í gær, samtök heimilanna hafa auglýst sérstaklega eftir kvörtunum gagnvart þessu fyrirtæki á heimasíðu sinni.
Hlynur taldi eðlilegra að kvartanir bærust beint til Dróma svo hægt væri að vinna úr þeim á réttum vettvangi, enda þjónaði það ekki hagsmunum fyrirtækisins að viðskiptavinir væru ósáttir. Hann sagðist ekki hafa séð tölur yfir fjölda kvartana.
Hlynur ítrekaði að Drómi sé aðili að öllum þeim úrræðum sem sett hafa verið á vettvangi fjármálafyrirtækja. Drómi hefur verið sakaður um að svara erindum seint og illa, en Hlynur sagði það ekki ríma við upplifun starfsfólks Dróma sem telur að málshraði erinda sé með eðlilegum hætti.
Hlynur hafnaði því jafnframt að Drómi starfaði gagngert að því að hámarka hag kröfuhafa, sem eru að mestu leyti evrópskir bankar.
Lán sem ekki eru í skilum er ekki mjög seljanleg verðmæti. Okkar markmið er að sjálfsögðu að leiða slitameðferðina til lykta. Hagsmunirnir liggja í því að við getum komið þeim eignum sem liggja í búinu í verð. Það eru lánasöfn, fasteignir og aðrar eignir. Lánasöfn þar sem eru mikil vandamál á ferðinni, vanskil, eru ekki mjög söluvæn vara.
Stór hluti lánasafns Dróma hefur verið seldur til Íbúðalánasjóðs og Seðlabanka Íslands. Enn eru eftir 4 þúsund lán í safninu sem Hlynur segir til sölu. Ekkert tilboð hefur þó borist, enn sem komið er.
Við höfum aldrei fengið slíkt erindi inn á borð til okkar, ekkert tilboð eða neitt slíkt. Eignasafnið okkar er til sölu. Ef að rétt verð berst, þá að sjálfsögðu seljum við.
Aðspurður út í hvort tímakaupið í slitastjórninni væri gott svaraði Hlynur:
Það getur hver metið fyrir sig. Ég vissi ekki til að það væri hér til umræðu en ég held ég hafi greitt 600 þúsund krónur í skatt fyrir síðasta mánuð, það má kannski reikna út frá því.
Jóhannes vitnaði í lögmenn sem segja að vegna þess hversu góð launin í slitastjórnum bankanna eru, þá dragi slitastjórnarmenn að slíta búinu eins lengi og hægt er meðan peningarnir streyma inn.
Þetta eru algjörlega staðlausir stafir,
sagði Hlynur og sagði launin einfaldlega taka mið af þeim töxtum sem gildi um störf lögmanna í þjóðfélaginu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

