Fasistar og kommúnistar? Allmargir framsóknar- og sjálfstæðismenn í Stjórnlagaráði
Er ekki einkennilegt að formaður Framsóknarflokksins líki þeim sem standa vilja að gerð nýrrar stjórnarskrár við fasista og kommúnista spyr Guðmundur Gunnarsson, einn stjórnlagaráðsmanna, sem minnir formanninn á að í því ráði hafi verið allmargir sjálfstæðis- og framsóknarmenn.
Guðmundi er tíðrætt um þjóðfélagsumræðuna í landinu og tiltekur þar ábyrgð hinna ýmsu þáttastjórnenda sem hann segir marga hverja sífellt kalla til sama fólkið. Sama fólk og þekkt er fyrir neikvæðni og hástemmdar yfirlýsingar
Nefnir hann sem dæmi umræðu um verðtryggingu, lífeyrissjóðina og frumvarpið til nýrrar stjórnarskrár en Guðmundur sjálfur var einn þeirra sem í stjórnlagaráði sat.
Vigdís Hauksdóttir var í gær síðdegis á Bylgjunni. Hún hefur marglýst því yfir að hún hafi ekki lesið frumvarpið [um nýja stjórnarskrá] en hún sé á móti því sakir þess að það sé svo vitlaust. Aðspurð hvers vegna, svarið var að hún væri nýútskrifaður lögmaður og hún bara vissi það og frumvarpið væri eingöngu í gangi vegna þráhyggju forsætisráðherra.
Í þessu sambandi þá beið maður eftir spurningu þáttarstjórnanda hvers vegna Vigdís og reyndar allur Framsóknarflokkurinn var með það sem eitt af aðalmálum sínum í síðustu kosningum um tafarlausa endurskoðun stjórnarskrárinnar og gerði það að forgangsskilyrði gagnvart fyrstu stjórn Jóhönnu.
Ekki síður finnst Guðmundur formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, einkennilegur í máli á Alþingi þegar hann líkti þeim sem vilja standa að gerð nýrrar stjórnarskrár sem fasistum og kommúnistum Stjórnarskrármálið ætti sér aðeins hliðstæðu í því gerðist fyrir austan járntjaldið í kalda stríðinu.
Einhvern veginn kemur maður þessu nú ekki heim og saman. Það var farið eftir vilja þjóðarinnar og stórra þjóðfunda og svo á spyrja þjóðina, þá verður allt vitlaust hjá sumum. Hverjum. Jú þeim sem hafa verið við völd lengi hér á landi með þekktum afleiðingum, en þeir óttast greinilega að missa sín völd til þjóðarinnar.
Það voru að því ég best veit allmargir sjálfstæðis- og framsóknarmenn í Stjórnlagaráði.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

