Fordæma árás á starfsmann Dróma – Ofbeldi og hatur ekki rétti farvegurinn
Samtök lánþega hafa fordæmt þá árás sem starfsmaður Dróma varð fyrir í gær. Þótt eðlilegt geti talist að gagnrýna störf og stefnu fyrirtækisins, þá gildi annað þegar ráðist er gegn friðhelgi einkalífs og heimilis, segir í tilkynningu samtakanna.
Eins og Eyjan greindi frá í morgun var ráðist á starfsmann Dróma síðdegis í gær. Fyrirtækið hefur undanfarna daga legið undir ámæli fyrir slæleg vinnubrögð og vanvirðingu gagnvart skuldurum og því ekki ólíklegt að árásin tengist þeirri umfjöllun.
Í tilkynningu Samtaka lánþega, sem Guðmundur Andri Skúlason ritar undir, er árásin fordæmd. Er því beint til skuldugra heimila og einstaklinga sem telja á sér brotið að beina þeim málum í réttan og eðlilegan farveg. Sá farvegur sé ekki ofbeldi og hatur.
Enginn einstaklingur á að þurfa að óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar, starfs síns vegna…Það er eitt að gagnrýna störf og stefnu fyrirtækis, en annað að ráðast gegn friðhelgi einkalífs og heimilis.
Í tilkynningunni segir jafnframt:
Við þurfum á því að halda nú, að allir aðilar máls geti og vilji tala saman um þá stöðu sem nú er komin upp varðandi uppgjör lána. Við erum nálægt lausn og við erum nálægt endamarki. Árásir sem beinist gegn fjármálafyrirtækjum eða starfsmönnum þeirra, hjálpa ekki í göngu okkar að settu marki.
Hatur er versti óvinur góðs málstaðar og ofbeldi er versti óvinur farsælla lausna. Stöndum saman. Flöggum málefnum, rökum og umræðu. Vinnum okkur til lausna, með friðsömum hætti.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

