eyjan.is

Miðvikudagur 22.02.2012 - 12:53 - Ummæli ()

Fundað hjá Dróma vegna árásar á starfsmann félagsins í gær

Bankamaðurinn sem ráðist var á í gær starfaði hjá Dróma. Starfsmenn félagsins voru látnir vita af þessu í morgun og var þeim brugðið vegna þessa.

Eins og Eyjan greindi fyrst frá var ráðist á háttsettan starfsmann fjármálafyrirtækis síðdegis í gær. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.

Umræddur starfsmaður starfar hjá Dróma, þrotabúi SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans. Það félag hefur verið mjög til umræðu undanfarna daga vegna kvartana sem borist hafa vegna vinnubragða fyrirtækisins.

Eyjan hefur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, ekki náð í framkvæmdastjóra Dróma. Magnús Steinþór Pálmarsson, sem starfar hjá slitastjórn Frjálsa fjárfestingabankans, staðfestir við Eyjuna að alvarlegur atburður hafi átt sér stað síðdegis í gær.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar voru starfsmenn Dróma látnir vita af atburðinum í morgun og var þeim verulega brugðið við þessi tíðindi. Gripið verður til aðgerða til að tryggja öryggi starfsmanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is