eyjan.is

Miðvikudagur 22.02.2012 - 12:25 - Ummæli ()

Fyrrum kosningastjóri segir Framsókn hafða að féþúfu – Gæti annars ekki verið meira sama

„Fyrirtæki í Reykjavík reynir nú að hafa minn gamla flokk Framsóknarflokkinn að féþúfu,“ segir Hallur Magnússon, fyrrum kosningastjóri Framsóknarflokksins. Árangurslaust fjárnám var gert hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík á mánudaginn.

Málið snýst um auglýsingar sem Framsóknarflokkurinn birtist í strætóskýlum fyrir alþingiskosningarnar 2009. JCDacaux telur flokksfélag Framsóknarflokksins í Reykjavík skulda sér 3,6 milljónir króna vegna auglýsinganna og skýrði Fréttablaðið frá því í dag að árangurslaust fjárnám hafi verið gert hjá flokknum á mánudaginn.

JCDecaux hefur þrjár vikur til að fara fram á að flokksfélagið verð tekið til gjaldþrotaskipta.

Hallur Magnússon, sem var kosningastjóri flokksins á þessum tíma, fjallar um málið á bloggi sínu á Eyjunni þar sem hann segir fyrirtækið hafa rukkað tvöfalt hærri upphæð en um var samið.

Héraðsdómur dæmdi JCDecaux í vil og segir Hallur að það hafi verið gert á málflutningi framkvæmdastjóra fyrirtækisins sem aldrei kom að málinu og starfsmanns sem bauð flokknum sérkjör fyrir þjónustuna.

Engin gögn. Engar sannanir,

segir Hallur sem telur allar líkur á að Hæstiréttur snúi dómi héraðsdóms við.

Því ef það gerist ekki þá eru félagasamtök í landinu berskjölduð fyrir óprútnum fyrirtækjum sem geta gefið út á þau tilhæfulausa reikninga.

En á meðan beðið er dóms hæstaréttar þá reynir fyrrnefnt fyrirtæki að gera Framsókn að féþúfu með því að kúga það til greiðslu tilhæfulauss reiknings með umfjöllun í fjölmiðlum.  Kúgunarleið sem fyrirtækið hefur áður beitt gegn flokknum.

Hallur er ekki lengur meðlimur í flokknum og segir að í raun gæti honum ekki verið meira sama um erfið fjármál flokksns, eða hvort aðildarfélög hans verði gerð gjaldþrota.

En ég vil þá að gjaldþrotið byggi á raunverulegum fjárskuldbindingum sem Framsókn hefur staðið fyrir en ekki tilhæfulausum fjárkröfum fyrirtækis út í bæ.

Í tilkynningu frá Framsóknarflokknum segir að ummæli framkvæmdastjóra JCDecaux komi verulega á óvart þar sem haldinn hafi verið fundur um lausn málsins fyrir helgi. Þar átti að koma í veg fyrir að málið færi til Hæstaréttar.

Ekki stendur til af hálfu Framsóknar að deila við JCDecaux í gegnum fjölmiðla, en sú aðferðafræði sem JCDecaux Íslandi  beitir hér, að leita til fjölmiðla þegar þeir halda fram kröfum sem byggjast á veikum lagalegum grunni, er þekkt meðal óprúttina aðila.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Framsókn hafi aldrei neitað að greiða skuld sem félaginu beri að greiða. Deilan snúist hins vegar um hvort skuldin sé til staðar og hversu há hún er. Á meðan samningar liggja ekki fyrir og Hæstiréttur hefur ekki úrskurðað í málinu verði meint skuld ekki greidd.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is