Hæstiréttur hefur ekki útdeilt neinum lottóvinningi – Fordæmisgildið algjört, segir þingmaður
„En gengistryggð húsnæðislán eru enginn lottóvinningur, þótt umræðan sé oft á þann veg. Það hefur kostað fólk blóð, svita og tár að reyna að halda áfram að greiða, ófá hjónabönd hafa brostið, fólk misst heimili sín og flutt úr landi.“
Þetta segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sem telur fordæmi nýfallins Hæstaréttardóms algjört, í grein sem hún birtir á Eyjunni. Hún segir að í dómnum segi einfaldlega að ekki sé hægt að krefja fólk um vexti langt aftur í tímann.
Það hlýtur að eiga við alla sem tekið hafa gengistryggð lán og greitt af þeim í samræmi við samkomulag við lánveitanda. Og það þýðir ekki endilega að hver einasta greiðsla hafi verið greidd.
Margrét segir hins vegar að strax hafi sprottið upp sérfræðingar sem segi að niðurstaðan sé ekki svona einföld. Þetta sé kerfið að verja sig fram í rauðan dauðann og það séu vonbrigði að sjá stjórnvöld spila með og sýna fjármálakerfinu „sjúklega meðvirkni og þjónkun á kostnað heimila og fyrirtækja“.
Markmiðið með lögum 151/2010 var ekki að rétta hlut lántakenda heldur reyna að koma gengislánahópnum í jafnslæma stöðu og þeim sem voru með verðtryggð lán. Ef allir yrðu jafnilla settir væri vandamálið leyst, ekki satt?
Margrét bendir á að gengistryggðu lánin hafi alls ekki verið lottóvinningur, líkt og margir halda fram. Oft gleymist að taka inn í myndina að lánin eru til langs tíma og þótt vextir hafi verið tiltölulega hagstæðir frá upphafi lánstímans, gildi það ekki um alla framtíð.
Bankarnir hafa alla möguleika á að ná því sem þeir vilja síðar á lánstímanum….Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar virðist mér því hafa verið að bjarga fyrst þeim sem skulduðu stóru peningana. Almenningur hefur mátt éta það sem úti frýs.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
