eyjan.is

Miðvikudagur 22.02.2012 - 16:51 - Ummæli ()

Nýtt Líf hefur enn ekki svarað kröfu Jóns Baldvins – Vill njóta andmælaréttar

„Ég er búinn að senda kröfubréf og biðja um að fá að sjá þetta,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson um væntanlega umfjöllun Nýs Lífs um einkamál hans á morgun. Hann hefur engin viðbrögð fengið frá útgefanda blaðsins.

Ritstjóri blaðsins, Þóra Tómasdóttir, hefur boðað að í tímaritinu sem kemur út á morgun verði fjallað um bréf sem Jón Baldvin er sagður hafa sent ungri stúlku fyrir nokkrum árum. Þau eru sögð kynferðislegs eðlis.

Jón Baldvin segir við Eyjuna að hann hafi farið fram á að sjá umfjöllunina og njóta andmælaréttar. Hann segist ekki hafa fengið svör við þeirri beiðni.

Aðspurður hvort hann muni krefjast lögbanns á útgáfu tölublaðsins, svarar Jón:

Nei, það held ég ekki.

Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is