Ólafur Ólafsson lýsir sig saklausan: Sérstakur leitaði í hesthúsi og verkfærageysmlu
Ólafur Ólafsson hafnar með öllu þeim ávirðingum sem á hann eru bornar í kæru sérstaks saksóknara á hendur honum. Hann segir ákæruna koma sér á óvart í ljósi þess að rannsókn málsins hafi tekið þrjú ár.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ólafur sendir frá sér. Eins og fram hefur komið snúast ákærurnar að kaupum Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani á 5 prósenta hlut í Kaupþingi í september 2008, vikum fyrir fall bankans.
Í yfirlýsingu sinni segir Ólafur:
Ég hafna alfarið ásökunum sérstaks saksóknara og lýsi mig saklausan af þeim öllum.
Í upphafi rannsóknar þessa máls var fullyrt að Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani hefði ekki komið að viðskiptunum. Þessar ásakanir hafa að fullu verið hraktar og Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani hefur staðfest við sérstakan saksóknara að hann hafi einn staðið að kaupunum.
Ég hafði því vonað að rúmlega 3ja ára rannsókn með tilheyrandi skoðun bankagagna á Íslandi og erlendis, símhlerunum, yfirheyrslum, húsleit á skrifstofum, í íbúðarhúsum, hesthúsi og verkfærageymslu, myndi leiða fram hið rétta í þessu máli sem er það að ég hef engin lög brotið. Ákæra þessi kemur mér því vægast sagt á óvart.
segir Ólafur sem mun ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Um ákæruefnin segir Ólafur:
1. Hlutdeild í meintum umboðssvikum:
Í fyrsta lagi er ég ákærður fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum stjórnenda Kaupþings banka en til vara fyrir hylmingu og peningaþvætti vegna láns Kaupþings banka til félags í minni eigu sem lánaði fjárhæðina áfram til félags í eigu Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani. Fyrir liggur að þetta lán var hluti af fjármögnun ofangreindra kaupa ásamt öðru láni sem Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani lagði fram persónulega ábyrgð fyrir.2. Hlutdeild í meintri markaðsmisnotkun:
Í öðru lagi er ég ákærður fyrir hlutdeild í meintri markaðsmisnotkun. Sérstakur saksóknari telur að milliganga um að koma viðskiptunum á og samskipti mín við Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani feli í sér refsiverða hlutdeild í meintri markaðsmisnotkun stjórnenda Kaupþings banka. Allar vangaveltur um aðkomu mína að kaupum Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani með þeim hætti að einhver hagnaðarhlutdeild ætti að rata til mín eru rangar.3. Meint markaðsmisnotkun:
Í þriðja lagi er ég ákærður fyrir meinta markaðsmisnotkun með því að tjá mig opinberlega um þessi viðskipti. Sérstakur saksóknari telur að uppbygging viðskiptanna hafi verið önnur en hún var og þess vegna hefði ég átt að geta þess í opinberri umræðu. Vegna ábyrgðar Sheikh Mohammed bin Khalifa Al Thani á endurgreiðslu lánanna frá Kaupþingi banka voru þær yfirlýsingar sem ég gaf í fullu samræmi við lög.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

