eyjan.is

Miðvikudagur 22.02.2012 - 10:02 - Ummæli ()

Sérstakur lætur til skarar skríða. Kaupþingsmenn og Ólafur Ólafsson ákærðir vegna Al Thani málsins

Ákærur hafa verið gefnar út á hendur þeim Sigurður Einarssyni, Hreiðari Má Sigurðssyni, Ólafi Ólafssyni og Magnúsi Guðmundssyni vegna Al Thani málsins

Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Magnús Guðmundsson og Ólafur Ólafsson hafa verið ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun vegna kaupa eignarhaldsfélags sjeiksins af Katar, Bin Khalifa Al Thani, á fimm prósenta hlut í Kaupþingi örskömmu fyrir fall bankans.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara en samkvæmt heimildum Vísis eru þeir ákærðu ofangreindir fjórir aðilar.

Hreiðar Már og Sigurður voru æðstu stjórnendur Kaupþings á Íslandi, Magnús stjórnaði Kaupþing banka í Lúxemborg og Ólafur Ólafsson hafði milligöngu um svokölluð kaupin sem gögn þykja hafa sýnt að voru ekki annað en kaup bankans í sjálfum sér.

Hefur mál þetta verið í rannsókn nánast frá bankahruninu 2008 en eignarhaldsfélag Al Thani, Q Finance, keypti fimm prósenta hlut í Kaupþingi tveimur vikum fyrir fall hans og þótti mönnum mikið til koma á þeim tíma.

Eru fjórmenningarnir ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun og Ólafur Ólafsson til vara fyrir yfirhylmingu og peningaþvætti.

Flókin flétta og kostnaðarsöm

Fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis að margt hafi verið vafasamt og á huldu varðandi þessi frægu kaup Al Thani en bréf bankans höfðu í töluverðan tíma fyrir það verið í falli og því komu fregnir af kaupum virts og háttsetts manns eins og þruma úr heiðskýru lofti og forsvarsmönnum bankans til mikillar gleði samkvæmt fréttum þess tíma. Það sýndi svo ekki þyrfti um að villast að erlendir fjárfestar hefðu sannarlega trú á bankanum. Hann féll tveimur vikum síðar.

Síðan hafa komið í ljós gögn er þykja sanna að Al Thani sjálfur lagði ekki fram eina krónu í viðskiptunum heldur ljáði þeim aðeins nafn sitt til að auka trúverðugleika og Kaupþing greiddi sjeiknum 6,5 milljarða fyrir þá notkun á nafni hans. Talið er að það hafi verið gert undir því yfirskini að Al Thani hafi sótt 50 milljón dollara lán hjá Kaupþingi og var lán það afgreitt sem fyrirfram greiddur arður. Var þetta jafnframt síðasta lánið sem lánanefnd Kaupþings samþykkti áður en bankinn féll.

Aldrei gert neitt rangt

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings á þessum tíma, sendi frá sér langa tilkynningu í janúar 2009 til að hrekja fréttir þess efnis að kaup Al Thani hefðu verið sýndarmennska ein. Þar kom meðal annars fram:

Forsvarsmenn Kaupþings, líkt og stjórnendur fjölmargra annarra banka, höfðu um nokkurt skeið reynt að fá til liðs við bankann stönduga fjárfesta í Mið-Austurlöndum. Það var bankanum því sérstakt fagnaðarefni þegar Sheik Al-Thani, bróðir Soldánsins af Katar, samþykkti að kaupa 5% hlut í bankanum. Í ljósi mjög erfiðra aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum þótti stjórnendum Kaupþings sjálfsagt að liðka til fyrir kaupunum með þeim hætti sem kostur var.

Sheik Al-Thani keypti hlutinn í Kaupþingi í gegnum eignarhaldsélagið Q Iceland Finance ehf. og voru þær fjárfestingar að hluta gerðar í formi persónulegra ábyrgða Sheik Al-Thani sem síðar átti að umbreyta í veðtryggingar í eigum hans. Félög í eigu Sheik Al-Thani og aðila tengdum honum fengu lán að samtals fjárhæð 25,6 milljarða ISK. Þar af var Sheik Al-Thani í sjálfsskuldarábyrgðum fyrir peningamarkaðslánveitingu að fjárhæð 12,8 milljarðar ISK, eða fyrir helmingi fjárfestingarinnar en eftirstöðvar voru tryggðar með þeim hlutum sem Q Iceland Finance ehf. hafði fjárfest í Kaupþingi. Rétt er að taka fram að seljandi hlutanna var Kaupþing og engir fjármunir fóru út úr bankanum vegna þessara viðskipta. Hlutirnir sem Sheik Al-Thani keypti voru því hlutir sem hundruð ef ekki þúsundir íslenskra fjárfesta höfðu selt bankanum síðustu vikurnar fyrir kaupin og voru engir innherjar þeirra á meðal.

Útistandandi skuld Al Thanis

Þess má geta að í lok árs 2010 skuldaði Al Thani rúmlega 26 milljarða króna í eignarhaldsfélaginu Q Iceland Finance auk þess að skulda opinber gjöld vegna stofnkostnaðar móðurfélagsins Q Iceland Holding.

Ekki kemur fram í tilkynningu frá embætti sérstaks saksóknara hvort Al Thani hafi verið yfirheyrður vegna málsins en af því hafa engar fregnir borist.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is