eyjan.is

Miðvikudagur 22.02.2012 - 11:42 - Ummæli ()

Spenna í samskiptum banka og skuldara – Ráðist á heimili bankamanns í gærkvöldi

Ráðist var á heimili háttsetts yfirmanns innan bankakerfisins í gærkvöldi. Lögreglan rannsakar málið.

Lögreglan var kölluð til að heimilinu síðdegis í gær.  Samkvæmt heimildum Eyjunnar býr háttsettur einstaklingur innan bankakerfisins á heimilinu. Ekki er talið útilokað, að árásin tengist málefnum sem verið hafa til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarin misseri.

Eftir því sem Eyjan kemst næst sakaði engan. Málið hefur verið tilkynnt lögreglu sem rannsakar málið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is