Stjórnlagaráð kallað saman á ný – Svartur dagur í sögu Alþingis, segir Vigdís
Alþingi hefur samþykkt að kalla stjórnlagaráð aftur saman áður en efnt verður til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um drög að nýrri stjórnarskrá. Þung orð voru látin falla á þingi þegar greidd voru atkvæði um tillöguna.
Sjálfstæðisflokkurinn lagðist gegn tillögunni, sem og meirihluti Framsóknarflokks. Stjórnarflokkarnir og Hreyfingin greiddu atkvæði með tillögunni.
Samkvæmt tillögunni verður lagt fram frumvarp um nýja stjórnarskrá næsta haust um leið og málið verður tekið til efnislegrar meðferðar.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði málið draga fram hversu ótrúlegar ógöngur málið hefur ratað í undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Gagnrýndi hann að engin efnisleg umræða hafi farið fram og ekki væri nema von að jafn lítið traust væri borið til Alþingis og raun ber vitni.
Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki, sagði málið hneyksli fyrir ríkisstjórnina og að dagurinn í dag væri svartur dagur í sögu Alþingis. Með þessu væri ríkisstjórnin að tefja málið og áætlar hún að kostnaðurinn við þetta ferli hlaupi á tugum milljónum króna.
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, sagði löngu tímabært að endurskoða stjórnarskránna og að reynslan sýni að þingið hafi ekki reynst fært um það. Með þessu móti fái almenningur tækifæri til að koma að ferlinu og því studdi hún tillöguna.
Valgerður Bjarnadóttir, Samfylkingu, sagði illiskiljanlegt að þingmenn hafi á móti því samráði sem felst í tillögunni.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

