„Við hlökkum til að vinna með hans hátign í framtíðinni“- Þetta sögðu Kaupþingsmenn um Al-Thani

Ákærur hafa verið gefnar út á hendur þeim Sigurður Einarssyni, Hreiðari Má Sigurðssyni, Ólafi Ólafssyni og Magnúsi Guðmundssyni vegna Al Thani málsins
Einn ákæruliðurinn í stefnunni á hendur Kaupþingsmönnum snýr að því hvernig þeir kynntu kaup Al-Thanis í fjölmiðlum. Sú háttsemi þeirra fellur að mati sérstaks saksóknara undir markaðsmisnotkun.
Þeir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson og Ólafur Ólafsson hafa verið ákærðir fyrir margvísleg brot í kringum meint kaup Katarmannsins Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani á 5 prósenta hlut í Kaupþingi. Meint viðskipti fóru fram í september 2008, mánuði fyrir fall bankans.
Í einum ákæruliðnum er þeim gefið að sök að hafa stundað markaðsmisnotkun með því að gefa misvísandi upplýsingar og vísbendingar um viðskiptin. Það var gert í tilkynningu á vef Kauphallarinnar og í viðtölum við fjölmiðla í kjölfarið.
Í ákærunni segir að í þessum tilkynningum hafi Kaupþingsmenn leynt því að Kaupþing fjármagnaði kaupin með lánveitingum og látið líta svo út að með fjármagn frá Katar væri á leið inn í bankann.
Jafnframt var gefið til kynna að Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani stæði einn að viðskiptunum en aðkomu ákærða Ólafs að þeim leynt. Um var að ræða stór viðskipti með hlutafé bankans fyrir alls um 26 milljarða króna á tímum þar sem bankinn stóð höllum fæti og því afar mikilvægt að upplýst væri um hina óvenjulegu fjármögnun viðskiptanna og þá sem stóðu að fjármögnuninni með réttum og nákvæmum hætti.
Í ákærunni er vitnað í fjölmörg viðtöl sem þeir Ólafur, Sigurður og Hreiðar Már veittu eftir viðskiptin. Hér að neðan má sjá hvað Kaupþingsmenn – og Al-Thani – sögðu um hin meintu kaup Al-Thanis:
Al Thani í tilkynningu til Kauphallar:
Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþings er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans.
Í sömu tilkynningu segir Sigurður Einarsson, þá stjórnarformaður Kaupþings:
Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohammed í framtíðinni.
Þetta sagði Hreiðar Már við hin ýmsu tilefni:
Í morgunfréttum RÚV, 22. september 2008.
Við erum búin að vera með starfsemi í Katar í eitt ár og í Mið-Austurlöndum í rúmlega ár, bæði í Katar og Dubai og þetta er í sjálfu sér fyrsta beina fjárfestingin til okkar eftir að við hófum starfsemi þar.
Fréttamaður: Er þetta ávísun á meira af því sama?
Það kemur okkur ekkert á óvart og vonandi munum við sjá fleiri fjárfesta koma til liðs við bankann.
Í hádegisfréttum RÚV 22. september 2008.
Það er náttúrulega mikil auðsöfnun sem á sér stað í Mið-Austurlöndum í dag í kjölfar hás orkuverðs. Og þeir eru að hugsa til framtíðar og hvernig þeir ráðstafi þessum auð á sem bestan hátt og því það er ljóst að þessar auðlindir duga ekki til eilífðar þó að Katar sé reyndar í bestri stöðu allra ríkja í heiminum hvað það varðar. Svo það er þeirra markmið að ávaxta sitt pund vel, að fjárfesta til framtíðar.
Fréttamaður: Hreiðar Már kveðst vonast til þess að þessi kaup séu undanfari fleiri slíkra, enda þurfi bankinn á erlendri fjárfestingu að halda til frekari vaxtar. Þá segir hann stöðu bankans styrkjast á alþjóðlegum fjármálamörkuðum við þessi kaup.
Alveg klárlega og við höfum séð að þeir bankar sem hafa náð að sækja peninga, fjármuni til Asíu, Mið-Austurlanda, að þeir standa sterkar að vígi en margir aðrir. Við sjáum Katar fjárfesta með myndarlegum hætti í Barcleys nýlega fyrir u.þ.b. tveimur mánuðum síðan og við sjáum að Barcleys er að taka yfir Lehman Brothers í dag. Og ég er sannfærður um að Barcleys væri ekki í þessari stöðu og væri ekki að fara í þessa yfirtöku á Lehman Brothers ef þeir hefðu ekki fengið fjármuni frá Katar á sínum tíma.
Í Markaðsfréttum Stöðvar 2, 22. september 2008.
Þetta hefur mikla þýðingu fyrir okkur, það er mjög mikilvægt í þessu umhverfi að fá fjársterka fjárfesta að bankanum.
Í fréttum Sjónvarpsins 22. september, 2008.
Ég held að þetta styrki bankann. Það er ljóst að það er óraunhæft fyrir okkur að sækja mikið fjármagn til íslenskra fjárfesta, bankinn er orðinn það stór og ef við ætlum að halda áfram að vaxa á alþjóðlegum markaði þá verðum við að ná í alþjóðlega fjárfesta.
Í viðtali í Morgunblaðinu 23. september, 2008.
Við teljum að þetta sé mikil traustsyfirlýsing fyrir félagið. Það er búið að fara í gegnum mikla úttekt og grandskoðun á rekstri bankans á undanförnum mánuðum og þessi fjárfesting er gerð í kjölfar þess.
Þetta sagði Ólafur Ólafsson á sínum tíma.
Í viðtali við Morgunblaðið 23. september, 2008.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kaupþing.
Í viðtali við 24 Stundir 23. september, 2008.
Ég er ekki í vafa um að þessi kaup munu skipta miklu fyrir Kaupþing. Bankar og fjármálafyrirtæki út um allan heim hafa legið utan í mönnum í Katar með það fyrir augum að fá þá inn sem hluthafa. Það hefur því góða mynd af styrk Kaupþings að Sheikh Mohammed skuli kaupa hlut í bankanum.
Ólafur segir mikilvægt að íslensk fyrirtæki geti sýnt að þau séu tilbúin að vinna með erlendum fjárfestum. „Það hefur tekist hjá Kaupþingi að fá góða erlenda fjárfesta inn í hópinn og það mun skipta sköpum í framtíðinni.“
Þetta sagði Sigurður Einarsson við fjölmiðla.
Í viðtali í Viðskiptablaðinu 23. september, 2008.
Við erum búin að vera með annan fótinn í Katar í töluverðan tíma og þekkjum þennan mann ágætlega og hans fólk. Þeir eru alltaf að leita að fjárfestingatækifærum enda hafa safnast saman mikil auðæfi þarna niður frá.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
