eyjan.is

Fimmtudagur 23.02.2012 - 10:54 - Ummæli ()

Árangursríkar viðræður við Huang segir bæjarstjóri. Ýmsar leiðir til skoðunar

Kínverski fjárfestirinn Huang Nobu hefur enn áhuga að eignast Grímsstaði á Fjöllum og sveitarstjórn Norðurþings telur nokkrar leiðir færar til að það geti orðið að veruleika.

„Það eru ýmsar leiðir til skoðunar, yfir þær erum við nú að fara og vonandi verða næstu skref orðin ljós eftir viku eða tvær,“ segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, sem kominn er heim frá Kína þar sem hann freistaði þess að endurvekja áhuga kínverska fjárfestisins Huang Nobu á fjárfestingum á Norðausturlandi.

Þær hugmyndir Kínverjans að kaupa land Grímsstaða á Fjöllum hafa legið í láginni um tíma eftir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hafnaði að gefa leyfi fyrir kaupunum fyrr í vetur. Mjög skiptar skoðanir voru og eru meðal fólks um hvort rétt sé að selja erlendum aðila svo stóra jörð sem Grímsstaðir á Fjöllum er.

Bæjarstjórn Norðurþings sætti sig ekki við þau málalok og fór Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, í sérstaka ferð til Kína til að freista þess að ná einhvers konar lendingu og fá Huang til að styðja við atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi.

Í samtali við Eyjuna segir Bergur fundinn hafa verið góðan. Áhugi Kínverjans sé enn til staðar og hann opinn fyrir að láta verða af kaupunum. Bergur segir þó ekkert hæft í því að Norðurþing kaupi jörðina að Grímsstöðum með lánsfé frá Kínverjanum í því skyni að leigja honum jörðina í kjölfarið. Hann vill þó alls ekkert gefa upp um hvernig sveitarfélagið hyggst fá Huang að borðinu.

„Við viljum gjarnan sjá fjárfestingar hér á svæðinu og til þess eru ákveðnar leiðir sem við förum nú yfir. Ég tjái mig ekkert um hvað þar er á ferð að svo stöddu en ég er sannfærður eftir förina til Kína að Huang er heill í sínu og mér finnst beinlínis galið að halda því fram að áform hans tengist eitthvað heimsvaldastefnu kínverskra stjórnvalda.“

Aðspurður hvort aðrir Íslendingar en íbúar Norðaustanlands eigi ekki kröfu á að vita hvað sveitarstjórnin hyggist fyrir viðurkennir Bergur að svo sé en segir að sama skapi eigi menn á svæðinu kröfu á að gera þá hluti sem þeir telji vænlegasta fyrir sitt hérað. Hann segir hlutina skýrast næstu viku eða tvær.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is