eyjan.is

Fimmtudagur 23.02.2012 - 09:36 - Ummæli ()

Grassera enn sýkingar í bönkum og lífeyrissjóðum? Jónína Ben óttast að svo sé

Hefur eitthvað breyst mikið eftir hrunið spyr Jónína Benediktsdóttir og telur að svo sé ekki

Jónína Benediktsdóttir lýsir áhyggjum sínum af því að enn grasseri spilling í bönkum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum landsins þar sem ekki hafi tekist að uppræta þá sýkingu sem hér olli bankahruni 2008. Sérstaklega sendir hún forsvarsmönnum lífeyrissjóða tóninn sem segja allt hafi verið bólu og ekkert því tapað.

Jónína skeiðar fram á ritvöllinn í pistli í Morgunblaðinu í dag þar sem hún segir samfélagið enn sýkt af þeirri bólu sem hér orsakaði efnahagshrun. Meinsemdir hrunsins sitji enn eftir og það breytist ekki nema almenningur viðurkenni að bóla sé annað og meira en loft í dós.

Bólan hér snérist um veikt eftirlit og samstöðu endurskoðenda (oft í eigu stórfyrirtækjanna sjálfra) fyrirtækjablokka, lífeyrissjóða, tryggingafyrirtækja og banka hér í formi mafíukenndra skuldatengsla og krosstengsla sem fáir nenntu að setja sig inn í.

Forstöðumenn lífeyrissjóðanna sem og illa innrættir stráklingar segja að þetta hafi allt verið bóla og því sé engu tapað. Strákar, er fólk fífl eða þið? (hef ekki heyrt neina konu halda þessu fram).

Hvetur Jónína almenning til að standa vörð um sitt til að koma í veg fyrir að meinsemd fyrri ári nái fótfestu að nýju í samfélaginu. Hún minnir jafnframt forstjóra lífeyrissjóðanna að þeir hafi verið teknir í bakaríið.

Hvernig gátu Existabærður og Baugsfeðgar ásamt hersveitum keypt fyrir ekkert eða loft? Hvernig borguðu þeir útrásina? Þeir stunduðu sjálftöku í lífeyrissjóðum, bönkum og tryggingafélögum en auk þess skilja þeir eftir sig þúsundir milljarða skuldir og þar með sett þjóðina í svíðandi skuldafangelsi um ókomna tíð? Vissulega voru þetta snillingar.

Engri þjóð hefur tekist að eyða öllum auðlindum sínum án þess að upplifa bólu í hagkerfinu, því allt sem af er tekið minnkar. Höldum vörð um íslenskar auðlindir eins og lífeyrissjóðina, kvótann, orkuna, náttúruna og krónuna. Allt þetta eru eigur og sparnaður þeirra sem vinna samviskusamlega með blóði sínu svita og tárum. Alls ekki eigur „snillinganna“ sem Ólafur Ragnar Grímsson mærði sem alþjóðleg undrabörn, þeir hafa nú þegar tekið út sinn sjóð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is