Handan mennsku að gera heimilisböl að féþúfu, segir þingmaður – Svipuð mál verið þögguð niður
„Það er sorglegt og langt handan mennsku, smekks og dómgreindar þegar miskunnarlaust fólk reynir að gera sér gamalt heimilisböl fólks að féþúfu,“ segir þingmaðurinn Þráinn Bertelsson um umfjöllun Nýs Lífs um málefni Jóns Baldvins Hannibalssonar. Blaðamaður segir ritstjóra íslenskra fjölmiðla hafa þaggað niður mál af þessu tagi.
Á Facebook síðu sinni hvetur Þráinn fólk til að sniðganga umrætt tölublaði.
Nú er það boðað að glanstímarit ætli í gróðaskyni að hafa æruna af Jóni Baldvini Hannibalssyni út af gömlum fjölskylduharmleik og dómgreindarbresti – sem á engan hátt tengist lögbroti af neinu tagi, og allrasíst „barnaníði“ eins og svo svo smekklega er látið liggja að. Það er sorglegt og langt handan mennsku, smekks og dómgreindar þegar miskunnarlaust fólk reynir að gera sér gamalt heimilisböl fólks að féþúfu.
KAUPUM EKKI NÆSTA TÖLUBLAÐ AF ÞESSU SORPRITI!
Tekur Þráinn það fram að hann tengist Jóni Baldvin ekki á nokkurn hátt, auk þess að vera ósammála honum um flesta hluti.
Það breytir ekki því að ég ætla ekki að standa hjá og horfa á hann niðurlægðan í gróðaskyni – jafnvel ekki af hræsnisfullum öfgafemínistum ellegar athyglissjúku fólki.
Ekki eru allir sem lýsa sig sammála þessum orðum þingmannsins. Þeirra á meðal er fréttamaðurinn reyndi, Björn Þorláksson. í athugasemd við færslu Þráins segist hann sem blaðamaður gleðjast yfir hugrekki ritstjórans Þóru Tómasdóttur að birta umfjöllunina, þótt málið sem slíkt sé mikill harmleikur.
Það jákvæða við málið, segir Björn, er að umfjöllun þessi gæti verið fordæmisgefandi.
Alkunna er að íslenskir ráðamenn hafa átt meira skjól hér á landi og fengið minna aðhald frá fjölmiðlum en í samanburðarríkjum, aðallega vegna veikrar stöðu fjölmiðla hér á landi, misskilnings varðandi hlutverk þeirra og sumpart er böl hvernig fjölmiðlar hafa verið mannaðir. Það sem hefur kallað á afsögn ráðamanna í útlöndum hafa ritstjórar/eigendur hér stundum þaggað niður. JBH-málið leiðir okkkur því vonandi til aukins gagnsæis, betra aðhalds og þverrandi leyndarhyggju. Og þar sem karlar komast upp með ýmislegt sem konur komast að jafnaði ekki upp með er þessi blaðamennska glæsilegt framtak konum til heilla…
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
