eyjan.is

Fimmtudagur 23.02.2012 - 10:19 - Ummæli ()

Jón Baldvin fær að tjá sig í næsta tölublaði Nýs Lífs – „Óboðleg vinnubrögð“

Nýtt Líf fjallar ítarlega um bréfasendingar Jóns Baldvins til 17 ára stúlku.

Ritstjóri Nýs Lífs segir að Jóni Baldvin Hannibalssyni sé frjálst að koma athugasemdum sínum um umfjöllun blaðsins á framfæri í næsta tölublaði, sem kemur út í næsta mánuði. Fjölmiðlarýnir Viðskiptablaðsins segir vinnubrögð af þessu tagi ótæk.

Nýtt Líf fjallar í dag um bréfasendingar Jóns Baldvins til 17 ára systurdóttur eiginkonu sinnar. Bréfin eru með erótískum tilvísunum. Jón Baldvin fór fram á það í gær, þegar hann frétti fyrst af umfjöllun tímaritsins, að koma athugasemdum á framfæri áður en blaðið kæmi út. Því var hafnað.

Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, segir í tilkynningu að ekki hafi verið þörf á að fá sjónarmið Jóns Baldvins þar eð afstaða hans komi meðal annars fram í lögregluskýrslum sem teknar voru á sínum tíma.

Ef Jón Baldvin telur þær skýringar ekki tæmandi er honum að sjálfsögðu heimilt að koma athugasemdum á framfæri í næsta tölublaði Nýs lífs.

Blaðamaðurinn Andrés Magnússon skrifar fjölmiðlarýni í Viðskiptablaðið í dag þar sem hann gerir mál Jóns Baldvins að umræðuefni. Hann segir að það sé óneitanlega verulegur galli á umfjöllun Nýs Lífs að hafa ekki borið áskanirnar undir hann.

Ekki svo að skilja, að hann hafi átt að hafa eitthvað um efnistökin að segja, en það er undirstöðuatriði, að þegar fjölmiðlar bera menn sökum þá hafa þeir samband við viðkomandi til þess að gefa þeim kost á að tjá sig um sakargiftirnar og bera af sér sakirnar kjósi þeir svo. Annað er frétt úr launsátri, sem eru óboðleg vinnubrögð fjölmiðla.

Andrés segir að það lélegt, en hugsanlega verjandi, þegar ljósvakamiðlar leyfa viðmælanda að hafa uppi ásakanir af einhverju tagi, án þess að sá sem fyrir þeim verður nái að svara fyrr en í næsta fréttatíma.

Hjá dagblaði gengur ekki að láta slíkar ásakanir liggja á opinberum vettvangi í sólarhring án þess að viðkomand eigi þess kost að bera hönd fyrir höfuð sér. Í mánaðarlegu tímariti er það algjörlega fráleitt.

Auðvitað mun Jón Baldvin finna sér vettvang til þess að tjá sig um þetta mál, kjósi hann það, en hitt blasir við að Þóra Tómasdóttir ætlaði sér að koma honum í opna skjöldu. Það eru ótæk vinnubrögð, alveg burtséð frá efni máls.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is