eyjan.is

Fimmtudagur 23.02.2012 - 11:50 - Ummæli ()

Jón Baldvin í fylgd 18 ára vændiskonu í opinberum erindagjörðum

Jón Baldvin Hannibalsson bauð 18 ára vændiskonu á næturklúbb sem, að hans sögn, var í eigu rússnesku mafíunnar. Þetta gerði hann þegar hann var staddur í opinberum embættisgjörðum í Tallin árið 2001.

Þetta kemur fram í bréfi sem Jón Baldvin skrifaði Guðrúnu Harðardóttur, systurdóttur eiginkonu sinnar, þegar hún var 17 ára.  Bréfið er birt í nýjasta tölublaði Nýs Lífs.

Jón var staddur í Tallin þar sem hann var heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu sem skipulögð var af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins.

Í bréfinu segir Jón Baldvin frá því að í Austur-Evróu sé „alltaf fullt af háklassahórum“ á veitingastað sem hann sótti. „Til að fá frið“ bauð hann einni þeirra í mat.

Hún var cirka 18 (ert þú ekki að nálgast það?) [...] Hún slóst í för með mér á næsta stað sem var næturklúbburinn. Hann reyndist vera rússneskur (mafían) en af vægari sortinni. Górillurnar báru ekki vopn utan á sér. Stelpurnar voru frá Rússlandi, Úkraínu, Póllandi og Litháen – og ein þeldökk frá Suður-Afríku. Þær voru á aldur við þig – allar slavnesk fegurð á háum hælum og með tagl, naktar nema með fíkjulauf fyrir hið allra heilagasta og streng um rassinn og mittið þvert.

Jón Baldvin lýsir samræðum sínum við vændiskonurnar þar sem hann segir að þær skammist sín ekkert fyrir vinnu sína, sem þær kölluðu kynlífsþjónustu. Þær hafi áður gegnt hinum ýmsu störfum, verið fóstrur, kennarar og „hjúkkur“.

Sú kátasta sagðist fá meira fyrir ein munnmök en sem barnfóstra á mánuði. Ef markaðslögmál eiga að ráða (og hinir virðulegu og vammlausu segja að það sé lögmálið) – þá eru þær bara praktískar konur, að fara skynsamlega að boðum markaðarins. Voila!

Hvergi í bréfinu gefur Jón Baldvin í skyn að hann hafi greitt vændiskonunni fyrir þjónustu sína, eða átt í nokkrum öðrum samskiptum við hana en ofangreindar samræður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is