Játar að hafa sent 17 ára stúlku erótísk bréf – Óvild og sorg innan fjölskyldunnar árum saman

Jón Baldvin sendi systurdóttir konu sinni erótíska bók og bréf fyrir löngu síðan og það voru mistök segir ráðherrann fyrrverandi og biðst afsökunar
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum ráðherra, játar sig sekan um dómgreindarleysi en ekki kynferðislega áreitni gagnvart systurdóttir eiginkonu sinnar í grein sem hann sendir fjölmiðlum en tímaritið Nýtt líf hefur birt bréf það sem hann sendi á sínum tíma og Jón segir hafa eitrað andrúmsloftið í fjölskyldu sinni um áraraðir.
Jón hafði farið fram á að fá að svara ásökunum tímaritsins þar en fékk ekki. Tekur Jón sjálfur af skarið í aðsendri grein í Fréttablaðinu og lýsir málinu frá sínum sjónarhóli. Hann ítrekar að ekki hafi verið um kynferðislega áreitni að ræða.
Hér er um að ræða fjölskylduböl, sem illu heilli hefur eitrað andrúmsloftið innan stórfjölskyldu okkar Bryndísar í meira en áratug. Það er álitamál, hvert erindi fjölskylduböl á við almenning í gegnum fjölmiðla. En úr því að Guðrún Harðardóttir (systurdóttir Bryndísar) hefur kosið að fara þá leið meira en áratug eftir að málsatvik urðu, verður að taka því.
Ég ætla að byrja á því að játa á mig sök. Ekki um kynferðislega áreitni – kærur um slíkt hafa verið bornar fram í tvígang og verið vísað á bug jafnharðan. En ég gerði mig sekan um dómgreindarbrest, sem lýsir sér í því að hafa orðið við tilmælum Guðrúnar Harðardóttur um að efna til bréfaskrifta við hana, sem aldrei skyldi verið hafa. Hún var skiptinemi í Venesúela, á 17da aldursári. Ég sendi henni bók eftir Vargas Llosa og bréf með. Sagan er dæmisaga um samskipti Norður- Suður Ameríku. Bók og bréf eru á köflum erótísk. Sjálfur hefur höfundurinn kallað bók sína „Eró-pólitíska“. Þetta bréf lýsir dómgreindarbresti mínum því að bréfið átti ekkert erindi við viðtakandann. Þetta hefur dregið dilk á eftir sér innan fjölskyldunnar og valdið þar óvild og jafnvel sorgarviðbrögðum árum saman. Ég hef ítrekað beðist fyrirgefningar á því – og endurtek þá afsökunarbeiðni hér með einu sinni enn.
Jón spyr hvaða erindi slíkt fjölskylduböl eigi við almenning. Öllum verði á í lífinu og hann harmi orðinn hlut í þessum máli.
Hér ríkir engin afneitun, engin þöggun og ekkert leyndarpukur. Hin umdeildu bréf hafa verið fjölfölduð og send til umfjöllunar fleiri sáttaaðilum en tölu verður á komið, innan og utan fjölskyldunnar. Fyrir nú utan þau afrit sem gengið hafa manna í millum í leynd og pukri. Allt án árangurs. Spurningin er: Hvaða erindi á þetta fjölskylduböl við almenning? Er einhver að nokkru bættari? Enginn er dómari í sjálfs sín sök. Ég læt því öðrum eftir að dæma um það.
Heimilisbölið er þyngra en tárum taki eins og Brynjólfur biskup komst að orði á sinni tíð. Öllum verður okkur á í lífinu. Öll þurfum við einhvern tíma á fyrirgefningu að halda. Ég harma það alla daga að hafa valdið fólki sem mér þykir vænt um í minni nánustu fjölskyldu sárindum og hugarangri að ósekju. Ég hef viðurkennt mína sök og beðist fyrirgefningar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
