eyjan.is

Fimmtudagur 23.02.2012 - 07:32 - Ummæli ()

Lýður Árnason: Hættið þeim leiða sið að ákveða heimsku þessa þjóðar takk

Íslenska þjóðin er bæði læs og almennt vel upplýst og getur vel tekið sínar eigin ákvarðanir um nýja stjórnarskrá

„Kynningarátak í aðdraganda atkvæðagreiðslu mun skila nýrri stjórnarskrá inn á hvert heimili í landinu. Þá mun hver sem vill dæma sjálfur um ágæti frumvarpsins. Sjálfskipaðir vizkubrunnar ættu að hætta þeim leiða sið að ákveða heimsku þessarar þjóðar, leyfum henni að gera það sjálf.“

Lýður Árnason, læknir og einn þeirra sem sat í stjórnlagaráði, hefur fengið sig fullsaddan á bollalengingum hinna ýmsu aðila sem telja að hin íslenska þjóð geti ekki og kunni ekki að taka upplýstar ákvarðanir um frumvarp um nýja stjórnarskrá. Hin nýja stjórnarskrá sé sögð allt of flókin eða hrein og bein tilraunastarfsemi sem sé einfaldlega ekki rétt skrifar Lýður í pistli í Fréttablaðinu.

En starf stjórnlagaráðs byggir á hundruðum blaðsíðna fræðimanna frá mismunandi tímum, allt frá stofnun Bandaríkjanna fram á okkar dag. Starf stjórnlagaráðs byggir á yfirlestri stjórnarskráa fjölmargra landa frá ýmsum tímum, starf stjórnlagaráðs byggir á tveimur hnausþykkum bindum stjórnlaganefndar sem voru einkar gagnleg, starf stjórnlagaráðs byggir á endurreisnarþrá eigin þjóðar í kjölfar hruns, samnefnurum þjóðfundar og umfram allt á óháðum fulltrúum sem kosnir voru af þjóðinni. Þetta er því engin tilraunastarfsemi heldur vel ígrundað ferli.

Lýður telur að frumvarpið sé langt í frá of flókið til að almenningur geti tekið ákvörðun um málið. Þjóðin sé læs og geti vel myndað sér skoðun á nýrri stjórnarskrá. En kannski sé hugmyndin að leyfa þjóðinni ekki að hafa neitt að segja um sína framtíð spyr Lýður.

Verði engin þjóðaratkvæðagreiðsla gefur það valdhöfum valfrelsi. Verði þjóðaratkvæðagreiðsla um annað en heildina verður útkoman matskennd og aftur fá valdhafar valfrelsi. Þjóðaratkvæðagreiðsla um hina nýju stjórnarskrá, óbreytta, mun hinsvegar leggja Alþingi línur. Því er reynt að leggja stein í götu nýrrar stjórnarskrár vegna þess að verði hún samþykkt færir hún í öllum sínum einfaldleika vendipunktinn nær þjóðinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is