Sleppa með skattsvik vegna anna skattrannsóknarstjóra. Hafa engan veginn undan

Meðal mála á borði skattrannsóknarstjóra eru mál tengd gömlu bönkunum og hruninu en embættið er of veikburða til að sinna rannsóknum eins og best verður á kosið
Embætti skattrannsóknarstjóra ræður engan veginn við þann fjölda mála sem embættið þarf að skoða og verður að forgangsraða eftir alvarleika brots hvern einasta dag. Enginn vafi leiki á að fjöldi skattsvikara sleppa vegna fyrningar brota þeirra.
Þetta staðfestir Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri, í samtali við Smuguna en hún segir málafjöldann hjá embættinu því sem næst botnlausan og embættið verði að gjöra svo vel og forgangsraða. Það hafi í för með sér að fjöldi meintra brota fyrnist áður en rannsókn lýkur eða jafnvel hefst.
Embætti skattrannsóknarstjóra hefur sent sautján mál áfram til sérstaks saksóknar í ár og í fyrra en töluverður fjöldi málanna tengjast stóru bönkunumog bankahruninu. Slík mál eru jafnan stór og flókin og kosta rannsóknir þeirra tíma og peninga. Lítið hafi breyst þó fjölgað hafi verið hjá embættinu að undanförnu. Þar á bæ hafi menn einfaldlega ekki undan.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
