Fólk, Forsíða - þriðjudagur - 31.7 2007 - 14:46

Ráðist á Eið Smára í miðborg Reykjavíkur - hrint og kýldur

gudjohnsen3.jpgEiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, varð fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur um helgina - honum var hrint og hann kýldur í andlitið. Hann slapp ómeiddur frá árásinni, ætlar ekki að kæra og var í dag á æfingum í með félögum sínum í Barcelona.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar var Eiður Smári að koma úr þrítugsafmæli Sverris Þórs Sverrissonar, Sveppa, sem haldið var á skemmtistaðnum Dómó, á laugardagskvöldið þegar ráðist var á hann. Hann var með nokkrum félögum sínum þegar maður, sem hann þekkti ekki kallaði á hann og vildi spjalla við hann. Þegar Eiður svaraði ekki réðist maðurinn á hann og hrinti honum þannig að Eiður  féll í götuna.

Þegar Eiður Smári stóð upp kom félagi mannsins að og kýldi hann í andlitið. Félagar Eiðs Smára skökkuðu leikinn en sjálfur lét hann sig hverfa af staðnum. Eiður hlaut ekki teljandi meiðsli og hefur verið á tveimur æfingum með félögum sínum í Barcelona í dag.

Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs Smára, staðfesti við Eyjuna í dag að Eiður hefði orðið fyrir árás í miðbænum aðfaranótt sunnudags og að hana hefði borið að með þessum hætti. Hann sagði að Eiður ætlaði sér ekki að kæra árásina.

28 ummæli

Rita ummæli

Alli
31.07 2007 kl.15:05

ég var nú þarna og var hann ekkert kíldur bara hrinnt á bossann..

Viggi
31.07 2007 kl.15:32

Já og það þarf nú líklega ekki mikið til þess að hann detti í jörðina, hann og Auddi Blö (sleikjan hanns) eru alltaf algjörlega á rassgatinu þarna niðrí bæ og standa varla í lappirnar.

HiGh
31.07 2007 kl.15:38

Dabbi nokkur Grensárs er sökudólgurinn og félagar hans í ófriðarglæpagenginu Fazmó. Slógu til Eyðs, Sveppa og Páls.

Nonni stóri
31.07 2007 kl.16:12

Djöfull er maður alveg kominn með nóg af litla skítnum honum Dabba grensárs!! hann á orðið ansi marga góða “”"vini”"”!!!

Íris
31.07 2007 kl.17:14

Hehe vá hvað fólk er ömurlegt.. Hverjum dettur í hug að ráðast á Eið Smára hehe og til hvers??

daniel
31.07 2007 kl.17:23

sá þetta var þarna þetta var ekki fazmó ...
og eiður sá þetta soldið koma hann átti bara að heilsa hann gat það ekki stóð og sagði ekki orð i 5 min .. og pam eiður er svífur á egóinu kominn timi til að hann lendi þessu.. eflaus margir sammála sem vita hvenrig hann er i raun og veru

daniel
31.07 2007 kl.17:24

Og afsakið stafsetningar villurnar :)

Róbert
31.07 2007 kl.17:34

Afbrýðusemin er alltaf erfið.

Svenni
31.07 2007 kl.20:05

afhverju í fjandanum má maðurinn ekki hafa egó. Ef ég væri hann og þyrfti að heilsa og svara hvaða einasta fávita sem yrðir á mig mundi ég gjörsamlega snappa.

Gunnar
31.07 2007 kl.20:48

Ég horfði á Davíð smára betur þekktur sem Davíð grensás kýla Eið Smára í andlitið eftir að vinur hans ýtti honum. Svo ekki reyna að segja að þetta hafi ekki verið Dabbi

Hanna
01.08 2007 kl.00:17

Ég var þarna þegar þetta gerðist og ástæðan fyrir að hann hrinti Eiði var ekki að hann vildi ekki svara honum. Þeir voru búnir að vera að spjalla saman og honum fannst Eiður vera með stjörnustæla og Eiður vildi ekki gefa honum high five eða eitthvað soleiðis og þá varð hann pirraður og hrinti honum í jörðina.

mr R
01.08 2007 kl.02:13

“Eiður svífur um á egóinu” en ekki “fazmó-gengið”.....sorglegt að sjá hvað sumt lið þroskast ekki

Diddi
01.08 2007 kl.02:54

Afbrigðisemin að drepa alla issss.
Fólk er svo brenglað og svo miklir hálvitar að það hálfa væri nóg.
Eiður er allt annað en Egó.

Tryggvi
01.08 2007 kl.03:28

Hehe hver svífur ekki á egóinu ef hann er í Barcelona?
En ég skal segja ykkur það ef ég væri jafn frægur og Eiður þá myndi ég líklega ekki heldur gefa eitthverjum “bully” high five. Til hvers? Sjá þetta fólk þarna niðrí bæ þyrpast að Eiði, alveg ótrulega hallærislegt.

Eyjan » Blog Archive » Segja að Fazmó-gengið hafi ráðist á Eið Smára
01.08 2007 kl.10:03

[...] athugasemdum við frétt Eyjunnar frá því í gær um árásina á Eið Smára Guðjohnsen í miðborg Reykjav

Joggi
01.08 2007 kl.11:57

Menn verða aðeins að draga hausinn út úr rassgatinu, leyfa manninum að fá smá frið. Og þessi Davíð sem kíldi hann má fara hugsa sinn gang og reyna gera eitthvað í lífinu annað en að vera til vandræða.

lalli
01.08 2007 kl.12:53

og át eiður smári svo bara öll vínberin :)

kiddi
01.08 2007 kl.13:08

Dabbi Grensás er pirraður yfir því að hann vinnur við að skipta um dekk með 90þúsund kall á mánuði meðan Eiður er með 11 milljónir á viku.

Þetta er bara afbrýðisemi og ekkert annað. Ég hélt samt að þessir strákar væru vaxnir upp úr því að ónáða fræga fólkið í bænum. Þó að Chelsea og Barcelona sé uppáhalds liðið þitt og þú horfir geðveikt oft á Eið í sjónvarpinu þá þýðir það ekki að hann þekki þig. Hafa menn ekkert stolt?

JÓN
01.08 2007 kl.13:47

Ekki segja mér að þetta sé sami vesalingur (Dabbi Grensás) og kýldi líka Sveppa hérna um árið!!! Vinur Halla og Ingvars í Fagsmó !!!!

doddi
01.08 2007 kl.20:12

Hvað er að fólki? Berjandi fólk fyrir ekkert, nákvæmlega ekkert.

Af hverju? Slagsmál eru það barnalegasta sem ég veit um. Mér finnst ekkert sorglegra en ofbeldi og ömurlegt hvað þarf lítið til þess að útúrkókuðu steinaldarmennirnir á djamminu berji saklaust fólk.

Hvað fær viti borinn mann til þess að berja aðra manneskju til óbóta? Það er bara einfaldlega mannvonska. Aldrei gæti ég gert öðrum manni þetta. Fólk er ekki bara kjötskrokkar sem henta vel sem kýlupúðar. Í flestum tilfellum eiga manneskjur mömmu og pabba, sem þykja vænt um þær og öfugt, manneskjur eiga líka oft systkini og börn sem öllum líður illa þegar eitthvað svona gerist. Sumir fá ævilöng ör á sálina við minnsta kjaftshögg. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Höfum við ekki flest svoleiðis?

Þessir fávitar sem eru alltaf að slást níðrí bæ eins og smábörn ættu að íhuga að fara í hópferð í ófrjósemisaðgerð, ekki vill ég að þetta pakk fjölgi sér og ali upp nýja geðsjúklinga fyrir næstu kynslóð. Ég skammast mín fyrir að vera hluti af þessari þjóð þegar maður heyrir um svona lagað niðrí bæ. Til þeirra sem aðild eiga að málinu: Skammist ykkar og LÆRIÐ AÐ HAGA YKKUR EINS OG VITI BORNAR MANNESKJUR!!!!

Svenni
01.08 2007 kl.21:54

vel sagt doddi

Dibs
01.08 2007 kl.23:47

Júbb, þetta er sami gaurinn og kýldi sveppa....

Dibs
01.08 2007 kl.23:51

Hvers son er þessi Dabbi Grensás??

$$keeperinn$$
02.08 2007 kl.00:37

ástæðan fyrir því að hann barði eið er sú að hann vildi bara vera gaurinn sem kíldi eið......algjör töffari:S ok ég hefði alveg verið til í að vera gaurinn sem gaf eiði smára “five” en rólex á að kílann,þó að eiður heilsi ekki hvaða fyllibyttu sem er....ekki myndi ég gera það ef ég væri eiður “he just wanted his 15 minutes of fame”
hann fékk sína frægð flottur gaur,eiður kærir ekki og gott mál.fíblið fékk sína frægð, allir sáttir

skati
02.08 2007 kl.00:41

Ég sá þetta. Þetta var dabbi grensás eins og margoft hefur komið fram hér á spjallinu. Einnig var annar breiður náungi með honum í för sem heitir margeir að mér skilst. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það. Ég ætlaði nú sjálfur að heilsa Eiði og ekki heilsaði hann mér. Ég kippti mér ekkert sérstaklega upp við það og ekki hvarflaði að mér að lúskra á honum:) Enda þekki ég hann ekki neitt og hann mig að sjálfsögðu ekki. Ég held þó að hann ætti að finna sér annan félagsskap heldur en Audda Blö og Sveppa. Hann þroskast ekki mikið með tunguna á þeim alltaf á kafi upp í rassgatinu á sér blandandi ógeðsdrykki!

danni h
02.08 2007 kl.00:43

mer fannst gott hja honum að kila eið
maður verður að kena fræga folkinu lexiu

Gunni B
02.08 2007 kl.02:45

ég er búin að sjá marga í gegnum árin sem halda að þeir séu eitthvað cool með því að lemja mann og annan þessir menn eru með mykkla minnimáttarkend og enda oftast sem alkar eða dópistar eða álíka aumingjar berjandi konur og börn af því að þeir eru orðnir svo skemmdir af þeim lifnaðarhætti sem þeir stunda.
persónulega sé ég ekkert að því að hann sé vinur audda og sveppa ég hef spjallað við þá nokkrum sinnum í gegnum mína vinnu og eru þetta fínir náungar hann þarf bara að passa sig í sambandi við heilbrigt líferni til að halda vinnunni þeir hafa frjálsari hendur í þeim málum

Eyjan » Blog Archive » Réðist á Eið Smára fyrir mánuði - nú á dómara í knattspyrnuleik
29.08 2007 kl.19:53

[...] Eins og við sögðum frá á Eyjunni 31. júlí sl. var ráðist á Eið Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins í knattspyrnu, þegar hann var á ferð um miðborg Reykjavíkur að næturlagi helgina áður. Eiður kærði árásina ekki til lögreglu. Sá sem þar  var að verki lét enn að sér kveða í gær, þá var hann að leika sem markvörður í utandeildinni í knattspyrnu með liði Gym80 á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Hann fékk rautt spjald undir lok leiksins eftir að hafa elt dómarann út á miðjan völl og hellt sér yfir hann með svívirðingum. [...]

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar